Málningarpenslar

- Sérlega fínir og mjúkir pensilþræðir
- FSC-vottað beykitré
- Hornpensill

- Fyrir veggi og loft – nærð mest frá gólfinu
- Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
- Langt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré

- Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn
- Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
- Glæsilegt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré

- Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn – besti alhliða pensillinn
- Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
- Stutt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré

- Úrvalspensill fyrir skarpar brúnir og nákvæmar línur
- Sérfínar og mjúkar gervitrefjar tryggja einstaklega sléttan frágang
- Skáskornar gervitrefjar tryggja nákvæma ásetningu

- Skáskorin lögun pensilsins tryggir nákvæmni
- Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
- Stutt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré

- Alhliða pensilþræðir
- FSC-vottað beykitré
- Hornpensill

- Alhliða penslahár
- Langur og FSC vottaður
- Stór pensill

- Alhliða penslahár
- Stuttur og FSC vottaður
- Stór pensill

- Fyrir útveggi og viðarverk, skáskorinn – fullkomið fyrir lóðrétta fleti
- Sveigjanleg pensilhár draga úr skvettum og dreifa efninu á skilvirkan hátt
- Þægilegt tveggja þátta handfang – hægt að festa á framlengingarskaft

- Góður alhliða pensill fyrir útiveggi
- Handhægt handfang sem tryggir gott grip
- 100% endurunnið plast

- Fyrir útveggi og timburverk utanhúss
- Sveigjanleg pensilhár draga úr slettum og dreifa efninu jafnt
- Handhægt handfang – festist á framlengingarskaft og nær lengra

- Til að bera á pallinn
- Breiddin á púðanum er 8*23 cm
- Gefur jafna ásetningu

- Passar á pallamoppuna
- Tveir í pakka

- Fyrir veggi og loft – nærð mest frá gólfinu
- Stíf gervihár gefa fallega áferð
- Handhægt handfang sem tryggir gott grip og nákvæmni

- Fjölhæft penslasett fyrir stærri verkefni
- Fyrir notkun inni og úti

- Frábært penslasett fyrir öll verkefni innanhúss – stór sem smá
- Stíf gervihár tryggja fallega áferð.
- Tveggja þátta þægilegt handfang veitir gott grip

- Fyrir allt frá hurðum og hurðarkörmum til gluggakistna og húsgagna – einn pensill, margir möguleikar
- Stíf gervihár gefa fallega áferð
- Þægilegt handfang sem liggur vel í hendi

- Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn – skáþræðir fyrir aukna nákvæmni
- Stíf gervihár gefa fallega áferð
- Tveggja þátta ergónómískt skaft veitir góða stjórn

- Fyrir glugga og lista – þegar nákvæmni skiptir máli
- Stíf gervihár gefa fallega áferð
- Handhægt handfang sem tryggir gott grip og nákvæmni

- Góður alhliða pensill fyrir fjölbreytt verkefni
- Endingargóð og slitsterk penslahár
- Handfang úr 100% endurunnu plasti.

- Til eftirstrikun á stærri flötum eins og húsgögnum, gluggakistum og hurðum
- Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án rákna
- Ergónómískt handfang úr krossvið

- Fyrir verkefni sem krefjast mikillar nákvæmni og fullkominna lína
- Mjög fín hár tryggja fallega áferð
- Þægilegt skaft úr slípuðu beykitré

- Vatnslitapensill fyrir lítil áhugaverkefni
- Gervihár tryggja fína og jafna útkomu
- Fallegt handfang úr lökkuðum viði

- Fyrir húsgögn og hurðir
- Gefur fíngerða og slétta áferð
- 10 cm málningarbakki, málningarrúlla, handfang og pensill

- Fyrir kantmálun á veggjum
- Tryggir fullkomna áferð

- Passar fyrir hornamálara
- Fyrir skarpar línur á veggjum
- Tryggir fullkomna áferð

- Náðu lengra með framlengingu – 130 cm
- Gerir málningarvinnu auðveldari og hraðari
- Fullkomið til að ná upp í háu loftin.

- Náðu enn lengra – Tegundir: 150 eða 200 cm
- Gerir málningarvinnu auðveldari og hraðari
- Fullkomið til að ná upp í háu loftin.

- Lengdir : 75, 120, 220 eða 400 cm
- Álskaft sem er bæði létt og strekt
- Passar á rúlluskaft

- Hagnýtt skaft sem gerir málningu að leik
- Framleitt úr koltrefjum sem gefur hámarksstyrk og stífleika
- Passar á rúlluskaft

- Þrír penslar sem duga fyrir flest verkefni
- Passar fyrir litlar sveigjur
- Fljótleg lausn á góðu verði

- Gott grip
- Til að mála og lakka
- Fyrir slétta fleti
Auðveldaðu þér vinnuna með hágæðapensli
Alveg sama hvað þú ætlar að mála, þá muntu ná betri árangri með því að nota hágæðapensil. Þú munt fljótt sjá muninn á því að nota einn af okkar hágæðapenslum og að nota ódýrari "einnota" pensil.
Við hjá Flügger erum sérfræðingar í málningarpenslum og höfum mikla reynslu og sérþekkingu á því sviði. Við erum með fjöldann allan af mismunandi penslum sem henta fyrir mismunandi verkefni, svo þú getur verið viss um að finna rétta pensilinn fyrir þitt verkefni hjá okkur.
Margir af penslunum okkar eru með hágæða penslahárum og mikið hefur verið lagt upp úr vinnuvistfræðilegri hönnun handfanganna, með það markmið að gera þá eins góða og þægilega í notkun og möguleiki er á. Unnið hefur verið með hönnun handfanganna og áhersla lögð á að gripið sé þægilegt fyrir málarann. Það skilar sér í því að málarinn heldur ekki með eins föstu gripi um handfangið og ella og þreytist því síður í hendinni. Eins dregur þetta úr líkum á ýmiskonar fylgikvillum á síðari stigum. Þetta snýst jú allt um það að gera vinnuna eins þægilega og skemmtilega og kostur er á.
Það eru margir aðrir kostir við það að velja hágæðapensil frá Flügger fram yfir gæðaminni pensla. Sem dæmi heldur hágæðapensill málningunnni betur í sér og hann fer síður úr hárum eins og getur verið vandamál með gæðaminni pensla.
Ríkulegt úrval pensla til notkunar innanhúss og utanhúss
Þegar þig vantar nýjan pensil þá stendur þú frammi fyrir því að velja þann rétta úr hafsjó mismunandi pensla.
Það mikilvægasta sem þú þarft að vita þegar þú kemur til okkar er hvaða tegund undirlags þú ætlar að mála. Allir okkar penslar eru vinnuvistfærðilega rétt hannaðir, endingargóðir og fallegir í útliti.
Hér að neðan má sjá yfirlit yfir hvaða penslar henta fyrir mismunandi verkefni:
- Ovalpensill / Sporöskjulaga pensill - Innandyra: Tréverk, t.d. panelklæðningar/alhliðapensill sem skilar hágæðaáferð. Utandyra: Tréverk, t.d. skjólveggir og grindverk/alhliðapensill sem skilar hágæðaáferð.
- Vinkilpensill - Innandyra: Frábær í nákvæmnisvinnu og til notkunar á þröngum svæðum sem erfitt er að ná til með hefðbundnum pensli, t.d. ofnamálun.
- Útipensill / Kústpensill - Utandyra: Frábær til málunar á stórum flötum, t.d. á múraða útveggi.
- Hringpensill - Innandyra: Frábær í nákvæmnisvinnu og í kverkum, hornum eða meðfram brúnum, t.d. til að mála lista eða karma. Utandyra: Frábær í nákvæmnisvinnu og í kverkum, hornum eða meðfram brúnum, t.d. til að mála lista eða karma.
- Flatur pensill - Innandyra: Hentar sérlega vel til að skera í kverkum milli lofts og veggja og meðfram hurðakörmum. Utandyra: Hentar sérlega vel til að fullmála járn og málma, tréverk og glugga.
- Jumbopensill - Innandyra: Héntar sérlega vel í kverkar milli lofts og veggja.
- Gólfpensill - Innandyra: Frábær til að lakka gólf og aðra stóra fleti.
- Spísspensill - Innandyra: Hentar vel til að mála minni svæði sem kalla á mikla nákvæmni, t.d. mjóa gluggapósta og lista. Utandyra: Hentar vel til að mála minni svæði sem kalla á mikla nákvæmni, t.d. mjóa gluggapósta og lista.
- Skáskorinn pensill - Innandyra: Hentar sérlega vel til að mála beinar línur á þröngum svæðum, t.d. milli gluggakarma og veggja. Utandyra: Hentar sérlega vel til að mála beinar línur á þröngum svæðum, t.d. milli gluggakarma og veggja.
Svona þrífur þú pensilinn þinn og heldur honum við.
Hreinsun pensla er mjög mikilvægur partur af málningarvinnu. Þrifin eru mismunandi eftir því hvernig málningu var verið að vinna með.
Vantnsþynnanleg málning: EInföldustu þrifin eru eftir noktun vatnsmálningar. Þá nægir að skola pensilinn með vatni, þvo hann svo með vatni og sápu og skola hann svo aftur í lokin. Endurtaktu þrifin þar til pensillinn er orðinn hreinn. Að loknum þrifum má þurrka pensilinn með handklæði eða klút, eða láta hann standa þar til hann þornar.
Olíumálning: Erfiðara er að þrífa pensilinn eftir notkun olíumálningar en vatnsmálningar. Byrjaðu á skola pensilinn með terpentínu eða þynni. Síðan er gott að þrífa pensilinn með sápuvatni og að lokum skola hann með hreinu vatni. Að loknum þrifum má þurrka pensilinn með handklæði eða klút, eða láta hann standa þar til hann þornar.



