Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Spartl og fylliefni

Viðgerðarspartl og fylliefni henta til að lagfæra ójöfnur, sprungur, göt o.þ.h. áður en málað er. Hægt að nota á flestar gerðir undirlags, t.d. Tré, múr, veggi og loft.
10 vörur
Létt fylliefni - Easy Filler Flügger
Frá 1.390 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Dalapro DM20 - Duftspartl
Frá 8.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Dalapro DM40 - Duftspartl
Frá 16.490 kr.
Bostik plastviður
Frá 1.990 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Hagmans stálplast micro
Frá 2.540 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Hagmans stálplast sveigjanlegt
Frá 2.540 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 10 vörur af 10

Hvað er fylliefni?

Fylliefni er spartlmassi til viðgerða á sprungum, ójöfnum og skemmdum. Fáanlegt tilbúið í túpu eða í duftformi sem blandast við vatn.

Þú velur milli mismunandi tegunda fylliefnis, allt eftir því hvers eðlis verkefni þitt er. Einnig er hægt að velja milli mismunandi litatóna.

Ef þú þarft að gera við timbur eða tré, getur þú fengið viðeigandi fylliefni í mismunandi viðarlitum, t.d. teak og furulitað.

Í hvað get ég notað fylliefni?

Fylliefni og viðgerðarspartl hentar til notkunar í alhliða viðgerðir og spartlvinnu á flestum tegundum undirlags. Sem dæmi má nefna sprunguviðgerðir, skrúfugöt eða minni skemmdir. Fyrir stærri spartlverkefni og/eða heilspörtlun á stórum flötum skal notast við þar til gert spartl.

Í allri spartlvinnu er góð regla að slípa milli umferða og yfir lokaumferð með sandpappír til þess að tryggja að flöturinn verði eins jafn og einsleitur og möguleiki er á.

Fylliefni má m.a. nota á:

  • Timbur
  • Múr
  • Veggi og loft

Mismunandi tegundir fylliefnis

Fylliefnin henta vel þar sem gera þarf við sprungur, skrúfugöt og aðrar skemmdir. Fylliefnin fást í ýmsum gerðum, sem henta í mismunandi verkefni. Hvort sem þú þarft að fylla upp í skemmd í vegg eða jafna ósléttan flöt, hvort sem þú ætlar að mála yfir eða ekki, þá ættir þú að geta fundið rétta tegund fylliefnis hjá Flügger. Einnig eru fáanleg sérhæfð fylliefni sem henta í sérstök verkefni.

Þegar þú velur fylliefni í þitt verkefni er mikilvægt að hafa ákveðna þætti í huga. Til dæmis hvort um er að ræða notkun innanhúss eða utanhúss og hvort það standi til að yfirmála viðgerðina eða ekki. Ef ekki á að mála yfir viðgerðina getur þurft að velja fylliefni með þeim lit sem samsvarar undirlaginu. Dæmi um þetta er viðgerð á teak gluggum eða hurðum sem eru glærlakkaðir eða olíubornir.