Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Málningarúllur fyrir lakk

Það er auðvelt og fljótlegt að fríska upp á ýmis konar tréverk á heimilinu með lökkun. Með því að nota rúllu sem hentar fyrir lakk má auðvelda verkið enn meira. Lakkrúlla er hönnuð til að skila fallegri, jafnri lakkáferð. Lakkrúlla hentar vel þegar þú vilt hressa upp á gömul trégólf með lökkun. Einnig hentar hún vel til að lakka hurðar, karma, borðplötur eða annað tréverk.
5 vörur
-25%
Rúlluskaft Stutt - NÝTT DESIGN - Flügger
Frá 494 kr.
Fyrir 659 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
-24%
Rúlluskaft Langt - NÝTT DESIGN - Flügger
Frá 637 kr.
Fyrir 849 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
-25%
Rúllusett Velour fine
Frá 817 kr.
Fyrir 1.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
-25%
Málararúllu Sett, 5 cm - Stiwex
Frá 494 kr.
Fyrir 659 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Sýni 5 vörur af 5

Hvaða rúlla hentar í lökkun?

Það eru til margar mismunandi tegundir af rúllum sem geta hentað við lökkun. Það sem mestu máli skiptir er að velja fína innirúllu sem er gerð úr stuttum hárum, svampi eða örtrefjum. Þessar rúllur eiga það sameiginlegt að þær skilja eftir sig minni rúlluför og skila sléttari áferð.

Lakkrúlla fyrir tréverk

Ef þú ert að fara að lakka tréverk innandyra, t.d. húsgögn eða hurðar, er gott að velja minni rúllu en þú myndir nota á veggi. Snögghærð rúlla eða jafnvel svamprúlla gefur fallega lakkáferð og hentar vel til að lakka allt tréverk, innandyra. Með því að velja réttu rúlluna lágmarkar þú hættuna á rúlluförum. Fín rúlla ber minna efni og með því að lakka húsgögn, hurðar, karma o.s.frv. með þynnra lagi af lakki má draga úr sýnilegum rúlluförum. Ef það vantar upp á þekju mælum við með að fara aðra umferð, frekar en að hlaða meira efni í hverri umferð.

Lakkrúlla fyrir gólf

Þegar gólf eru lökkuð er yfirleitt verið að vinna með stærri fleti en við húsgagna- og hurðalökkun. Þess vegna er ráðlegt að velja breiðari rúllu. Eins er algengt að notast sé við örlítið grófari rúllu sem ber meira efni.

Lakkrúlla:

  • Svamprúlla
  • Microfiber rúlla
  • Snögghærð rúlla