Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Á heimili Frederikke eru engir hvítir veggir

 

Hjá Frederikke Sølling Thomsen er vel ígrundað litaval sem passar vel saman og myndar bakgrunn fyrir fágaða innanrýmishönnun sem einkennist af fallegu og litríku handverki.

Tilfinning hennar fyrir gæðum og litasamsetningu birtist í hverju horni á sameiginlegu heimili hennar og kærastans Emils í Nørrebro.

Þegar maður stígur hér inn skynjar maður strax að hér býr manneskja með mjög þróaða tilfinningu fyrir smáatriðum.

Allt á heimilinu hefur verið valið af mikilli kostgæfni og þegar Frederikke segir frá nytjafundum sínum finnur maður ástina fyrir sögunni sem þau bera með sér.

Frederikke står i en døråbning og læser en turkis bog, der matcher de malede paneler omkring hende.

Viðvarandi ferli

Þrátt fyrir sannfærandi fagurfræði er innanhússhönnun Frederikke ekki kyrrstæð. Sjálf lýsir hún því sem innsæisferli sem á sér stað í sífellu og einkennist af þeim fjölmörgu list- og heimilishlutum sem hún tekur með sér heim úr ferðalögum sínum. Það er mikilvægt fyrir hana að hafa rými til að leika sér og prófa mismunandi hluti og sem betur fer hefur kærastinn hennar, Emil, svo mikla trú á innanhússhönnunar hæfileikum hennar að hann leyfir henni að upplifa ástríðuna á sameiginlegu heimili þeirra.

Lyst soveværelse med vægge i Soft Alna og indbyggede skabe i Flat White, indrettet med seng, mønstret sengetæppe og stribet loft lampe.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Stue med væg i Sage, indrettet med træbord, bøger og en buet grøn væglampe.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Indbygget reol i Corsica åbner mod badeværelse med vægge i Rouge, sort-hvidt klinkegulv og lyserødt møbel under vinduet.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Frá Ítalíu til Nørrebro

Áhuginn á “vintage” hönnun kviknaði þegar Frederikke lærði og bjó í Mílanó fyrir átta árum. Það þróaðist í mikla ástríðu og í dag lifir hún af því að selja vintage glerlist og húsgögn - aðallega frá Ítalíu - í versluninni Millefiori Interior, sem hún rekur ásamt systur sinni, Natöshu. Suðrænum innblæstri er ekki hafnað í innanhússhönnun Frederikke. Hjá henni eru gylltir tónar í samspili við líflega græna og bláa tóna. Þeir tengjast hlýlegu loftslagi, en mynstraður textíll, ásamt sterkum rauðum og gulum litum í list og innanstokksmunum heimilisins skapa fallegar og líflegar andstæður.

Innrëtttuð með Flügger 80
Frederikke arrangerer glasvaser i forskellige farver på et træbord.

Engir hvítir veggir

Löngun til að skapa lifandi andrúmsloft hefur þýtt að íbúðin hjá Frederikke hefur enga hvíta veggi. Hins vegar hefur Frederikke valið mjúka tóna fyrir alla stóra fleti heimilisins til að skapa samræmi á milli herbergjanna. Þetta val myndar tímalausan bakgrunn sem lagar sig auðveldlega að áframhaldandi breytingum á innanstokksmunum. Í eldhúsinu skapar "Soft Alna"  liturinn hlýlegt og aðlaðandi andrúmsloft - fullkomið fyrir það rými en Frederikke og Emil nýta það oft fyrir notalega kvöldverði með vinum og vandamönnum.

Skoðaðu litinn Soft Alna
Køkken med lyse vægge, grønmalede vinduesrammer og skabe i træ, indrettet med spisebord og røde stole.

Fallegur grænn bakgrunnur

Grænn er uppáhaldslitur Frederikke og þess vegna endurtekur hann sig á nokkrum stöðum á heimili hennar. Grænir tónar geta bætt frábærri orku við herbergi og í stóru stofunni hennar Frederikke skapar "Sage" liturinn bæði ferskt og róandi andrúmsloft. Á sama tíma er liturinn svo vanmetinn að hann stígur fallega inn í bakgrunninn og leyfir öðrum litum í skreytingum heimilisins fá pláss.

Stue med vægge i Sage, indrettet med lys sofa, farverige puder, træbord og grøn væglampe samt glaslysekrone.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Indbygget reol i Iceland med åbne hylder og skabe, stylet med bøger og glas i et rum med vægge i Sage.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Køkken med vægge i Soft Alna og dør i North Sea, indrettet med træskabe, spisebord og røde stole.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Blágræn smáatriði

Íbúð Frederikke er klassísk íbúð í Kaupmannahöfn með mörgum upprunalegum smáatriðum. Til að undirstrika sum þeirra hafa einstakar hurðir og gluggar verið málaðir í tónum af bláu og grænu. Í eldhúsinu skapar "North Sea" liturinn á tréverkinu fallega andstæðu við "Soft Alna" litinn á veggjunum og á skrifstofunni er það "Atlas" liturinn sem dregur fram fallegu útiidyrahurðina og hrósar daufgræna "Viggo" litnum.

Rum med vægge i Viggo og dør i Atlas, indrettet med skænk i træ, bordlampe og stol ved vinduet.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Frederikke står foran en sofa og holder en kop, omgivet af dæmpede farver og tekstiler.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Væg i lys nuance møder en mørkeblå dør med klassiske detaljer og greb.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Fylgni milli gamla og nýja 

Til að skapa samræmi milli nýrra og gamalla tíma eru innbyggð húsgögn íbúðarinnar einnig lökkuð í blágrænum tónum. Í stofunni er stóri bókaskápurinn, þar sem margir “vintage” glervasar Frederikke eru til sýnis, lakkaður í svala myntugræna "Iceland" litnum sem hrósar fallega ljósgræna "Sage" litnum á veggnum sem hann stendur við. Á ganginum er annar innbyggður bókaskápur sem er lakkaður með örlitla rykuga litnum "Corsíka".

Skoðaðu litinn Sage
Køkken med lyse vægge, træskabe og en dør malet i dæmpet blågrøn nuance.

Þrjú litaráð innblásin af Frederikke

  1. Skapaðu líf og persónuleika að þínum stíl með því að mála alla veggi í lit.

  2. Veldu tímalausa og rólega tóna fyrir stóra fleti heimilisins, og þú getur stöðugt breytt innanstokksmunum án þess að þurfa að endurmála allt.

  3. Lakkaður hurðir, lista og annað tréverk í ólíkum litum innan sömu litasamsetningar og skapaðu sjónrænt samhengi á heimilinu.

Myndirnar í greininni eru teknar af:

  • Innanhússhönnun – Jeppe Sørensen: Sjáðu heimasíðu hans hér 

  • Andlitsmyndir – Kasper Leegaard: Sjáðu heimasíðu hans hér

Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.