Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

"Ég held að sköpunargáfan geti farið úr böndunum ef þú vilt gera allt"

 

Þegar Magnús kom inn í íbúðina sína í fyrsta skipti sem er við Søerne í Kaupmannahöfn í desember 2023 leið honum eins og hann hefði farið í tímavél. Íbúðin sem er í hinu merka Vestersøhus var að mestu leyti upprunaleg frá árinu 1939, árið sem hún var byggð.

Byggingin er friðlýst og er eitt af aðalverkum Kay Fisker. Byggingin er klassískt dæmi um fúnksjónalískan byggingarstíl sem kom fram á þriðja áratug síðustu aldar. Það var einmitt þessi samsetning sögu og staðsetningar sem varð til þess að Magnús varð ástfanginn af íbúðinni.

Magnus står i en døråbning og smiler, omgivet af grønne vægge og mørke paneler.

List hins mögulega

Það þarf bæði þolinmæði og yfirsýn við að gera upp friðlýst íbúðarhúsnæði. Byggingunni fylgir sérstök verndarhandbók, sem og samstarf við dönsku hallar- og menningarmálastofnunina til að tryggja að breytingar sem gerðar eru séu samræmi við reglur í kringum friðlýstar byggingar. En þó að sumum þætti þessar takmarkanir koma í veg fyrir alls kyns möguleika, lítur Magnús á þær sem spennandi áskorun sem veitir sköpunargáfunni stefnu og fókus. Vel ígrunduð áætlun og skýr stefna hefur verið Magnúsi nauðsynleg í gegnum endurbæturnar. Hann kastaði sér út í verkefnið eins og sá lögfræðingur sem hann er: greinandi, skipulagður, með fókus á smáatriði og lausnamiðaður.

Þetta byrjaði allt með ”moodboard” þar sem litir og efni voru samræmd til að tryggja sama rauða þráðinn um allt heimilið. Magnús sótti sinn innblástur með því að rannsaka upprunaleg smáatriði íbúðarinnar, umhverfi hússins og sögu arkitektsins Kay Fisker.

Magnus sidder på hug og kigger på et maleri der læner sig op ad væggen.
Magnus sidder ved et bord og kigger på et farvekort, med andre farveprøver liggende på bordet.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Stue med lyse vægge og mørk vinduesramme, indrettet med sofa, sofabord og træmøbler foran stort vinduesparti.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Samhangandi litaheimur

Til að skapa tengingu á milli íbúðarinnar og útsýnisins byggðist litaval Magnúsar á litum sem fundust í kringum ytra umhverfi byggingarinnar. Úr eldhúsinu og borðstofu er útsýni yfir á Arne Jacobsen byggingu sem er klædd gleri í grænleitum tónum, en úr stofunni horfir hann út á trjátoppana við Sankt Jørgen's vatnið. Þess vegna féll valið í grænan litaskala.

Í leit sinni að réttu grænu litbrigðunum valdi Magnús 20 litaprufur sem allar voru málaðar á veggina til að geta fengið tilfinningu fyrir litunum og hvernig þeir virkuðu saman. Hann endaði á að velja "Anker" fyrir stóru rými heimilisins; borðstofu, stofu og svefnherbergið. Magnús valdi að velja tvo liti á veggina, efri og neðri hluta þeirra.

"Anker" var málaður á efri hluta veggjanna og sameinaði þannig herbergin þrjú með því litavali. Hann valdi svo mismunandi liti fyrir neðri hluta veggjana fyrir þessi rými, sem eru samt allir græntóna. "Cool Khaki" í svefnherberginu, "Moss" í stofunni og "Sage" í borðstofunni veita fjölbreytni sem neðri litirnir en skapa samt samræmda heild og tengingu við útsýnið úr íbúðinni.

Soveværelse set gennem en sort dørkarm, indrettet med seng, væglamper og kunst i grønlige nuancer.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Hjørne af stue med væg i to grønlige farver, sort vinduesramme, træskab og dekorative objekter.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Samhangandi andstæður

Svartir panelar og listar í íbúðinni eru í senn hneiging til hreinna lína og fúnksjónalismans en um leið smáatriði sem hjálpa til við að undirstrika upprunalegan karakter íbúðarinnar.

Tundurskeytalaga hurðarhúnarnir og gluggakisturnar í svörtum marmara tengjast fallega við svarta tréverkið, eða eins og Magnús orðar það, skapar "ósvífnar andstæður" við mjúku grænu tónana á veggjunum.

Andstæður eru nokkuð sem Magnús er mjög meðvitaður um í innanhússhönnun sinni, þar sem kaldir málmar leika sér við hlýjan við og listmuni, er mjúkur textíll falleg viðbót við sterku línurnar sem húsgögnin einkennast af. Þessi blanda af efnum og upplifunum vekur innanhússhönnunina til lífs

Væg i to grønlige nuancer med et sort kunstværk i midten af væggen.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Væg i 2 grønlige nuancer i spisestuen med et abstrakt maleri af et ansigt i midten, omringet af sorte paneler.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Rými fyrir frið og íhugun

Í takt við funksjónalismann hefur Magnús einbeitt sér að því að hámarka notagildi hinna mismunandi herbergja í innanhússhönnun sinni. Á gólfið hefur hann valið sisal teppi, sem gefur bæði sjónræna rólega upplifun og skemmtilegan hljómburð.

Í þessu herbergi, til að skapa hugarró, hefur hann bara valið einn lit á veggina. Ljósir grænir tónar eru þekktir fyrir að auka einbeitingu og því var "Pocket Green" sjálfsagður kostur fyrir skrifstofuna.

Sjáðu litinn "Pocket Green"
Kontorbord i beige med bordlampe og en træstol, omringet af grønne vægge.

Þrjú góð ráð um liti innblásin af Magnúsi

  1. Málaðu upp litaprufur – sérstaklega ef þú ætlar að velja nokkra liti fyrir heimilið þitt og langar að sjá hvernig litirnir fara saman.

  2. Veldu sama grunnlit fyrir herbergin og málaðu efrihluta veggjana í þeim lit og neðri hluta veggjanna í mismunandi litbrigðum innan sama litakvarða til að skapa fíngerðan litaleik á öllu heimilinu.

  3. Skapaðu samræmi á milli upprunalegu sögu hússins og nýrra tíma með því að láta litaval þitt byggjast á upprunalegum smáatriðum heimilisins og umhverfi hússins.

Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.