Málningarlímband
Hvað er málningarlímband?
Málningarlímband er sérstök tegund límbands sem hentar vel til að verja fleti sem ekki á að að mála. Málningarlímband er fáanlegt í ýmsum gerðum, breiddum og litum. Það ætti því að vera auðvelt að finna rétta límbandið sem hentar þínu verkefni. Þar að auki er hægt að fá málningarlímband með áföstu hlífðarplasti, sem hentar vel þegar stúka þarf af heilu svæðin eða verja innréttingar sem dæmi.
Svona er hægt að nota málningarlímband
Málningarlímband hentar vel til að verja þau svæði sem ekki á að mála. Málningarlímband kemur t.d. að góðum notum í samskeytum milli veggja og lofts, yfir gólflista og skrautlista, hurðakarma og kringum glugga. Gott málningarlímband gerir málningarvinnuna auðveldari og fljótlegri og tryggir það líka að þú færð hreinar, flottar línur í málningarverkinu þínu. Málningarlímband hentar líka mjög vel ef þú vilt mála hluta af vegg, það auðveldar þér að ná fallegum línum þegar veggnum er skipt upp.
Að fjarlægja málningarlímband
Þegar þú ert búin/n að mála er mikilvægt að fjarlægja málningarlímband sem málað hefur verið yfir, áður en lokaumferð af málningu nær að þorna að fullu. Ef málningin fær að þorna á límbandinu þá getur verið hætta á að límbandið rífi málninguna með sér af þegar það er fjarlægt. Ef þú þarft að mála fleiri en eina umferð af málningu meðfram málningarlímbandinu þá er óhætt að láta límbandið standa þar til lokið hefur verið við síðustu umferð.