Málningarúllur fyrir loft
Hvaða málningarrúllu skal velja í loft?
Þegar þú málar loft er yfirleitt góð hugmynd að velja rúllu sem er breið (18-25 cm). Með breiðri rúllu vinnst verkið hraðar og verður auðveldara.
Reyndu að velja gæðarúllu sem tekur í sig mikla málningu og heldur henni vel í sér. Það er mjög mikill kostur í loftamálun til að halda ýringu og slettum í lágmarki. Vinnan verður auðveldari og snyrtilegri.
Málningarrúlla fyrir timburklædd loft og panelloft
Það er ekki bara breiddin á rúllunni sem skiptir máli í loftamálun heldur líka grófleikinn. Oft er gott að velja rúllu sem er milligróf eða gróf. Valið ræðst í raun af því hvers konar loft er verið að mála. Ef um er að ræða slétt loft eins og t.d. gipsloft er ágætt að velja milligrófa rúllu, þar sem hún gefur sléttari áferð en gróf rúlla. Ef þú ert aftur á móti að mála gróft eða hraunað loft þá getur hentað betur að nota grófari rúllu. Þá er minni áhersla á að fá slétta áferð og meiri áhersla á að rúllan beri mikið efni og fylli vel.
Með því að nota breiða rúllu muntu ná inn í sprungur í viðnum. Hún hentar því vel til að mála panelloft og önnur viðarklædd loft, þar sem bil er á milli loftborða.
Rúlla í kverkar í loftum
Algengt er að pensil frekar en rúllu til að skera í kverkar í loftum. Ókosturinn við það er að pensill getur skilið eftir penslaför sem eru öðruvísi en áferðin frá rúllunni. Þetta má koma í veg fyrir með því að nota litla rúllu í skurðinn.
Málningarrúlla fyrir loft:
- Breið málningarrúlla
- Milligróf - gróf
Framlengingarskaft fyrir málningarrúllu
Það er mjög gott að nota framlengingarskaft þegar verið er að mála loft. Handfangið fyrir rúlluna er þá fest á framlengjanlegt skaft sem gerir þér auðveldara að rúlla stór svæði með löngum og jöfnum strokum án þess að þurfa að nota tröppu. Framlengingarskaft nýtist líka vel við að mála aðra stóra fleti, t.d. veggi og gólf.