Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Málningarúllur

Málningarrúllur eru fáanlegar í mörgum stærðum og gerðum. Mikilvægast er að velja rétta rúllu fyrir þitt verkefni. Rétt rúlla skiptir ekki bara máli fyrir lokaútkomuna, heldur líka á meðan verið er að mála. Það hefur ýmsa kosti að mála með rúllu frekar en pensli. Þú ert fljótari að mála stóra fleti og það er auðveldara. Með því að rúlla þá færðu jafnari áferð og ert laus við penslaför og penslahár sem geta losnað úr penslinum. Málningarrúllur fást bæði stakar og í settum með bakka og tilheyrandi.
23 vörur
Strúktur Málararúlla Skum Quick - Flügger
Frá 2.990 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Stutthærð Málararúlla Velúr - Flügger
Frá 1.040 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Alhliða Stutthærð Málararúlla Microlon - Flügger
Frá 1.140 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Langhærð Málararúlla Lamlon - Flügger
Frá 939 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Langhærð Málararúlla Microlon - Flügger
Frá 849 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Langhærð Málararúlla Proflon - Flügger
Frá 769 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Quick - Langhærð Málararúlla Maxlon - Flügger
Frá 1.040 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málararúlla Skum - Stiwex
Frá 2.140 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Alhliða Hornarúlla - Flügger
Frá 3.590 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Rúlluskaft Stutt - NÝTT DESIGN - Flügger
Frá 659 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Rúlluskaft Langt - NÝTT DESIGN - Flügger
Frá 849 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Rúlluskaft Dobbelt - NÝTT DESIGN - Flügger
Frá 4.490 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Rúllusett Velour fine
Frá 1.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málararúllusett Microlon Rough - Flügger
Frá 1.440 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Málararúllu Sett, 5 cm - Stiwex
Frá 659 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Skurðarúlla, 10 cm - Flügger
Frá 3.790 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Cutting in roller refill 10 cm
Frá 3.290 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Framlengingarskaft 130 cm
Frá 1.090 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Teleskopskaft - NÝTT DESIGN
Frá 1.890 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Teleskopskaft Ál - NÝTT DESIGN - Stiwex
Frá 4.290 kr.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Teleskopskaft Kolfiber 180 cm - NÝTT DESIGN - Flügger
Frá 31.990 kr.
Sýni 23 vörur af 23

Mismunandi hlutar málningarrúllu

Það eru nokkrir mismunandi hlutar af málningarrúllu sem ber að skoða þegar verið er að velja rétta rúllu.

Það mikilvægasta er rúllan sjálf sem þarf að vera í réttri stærð með hliðsjón af umfangi verkefnisins. Handfangið þarf einnig að vera í réttri stærð svo að rúllan passi vel upp á teininn. Þú getur valið mismunandi tegundir af rúllum sem passa upp á sama handfangið. Síðan er líka hægt að velja framlengingarskaft í þeirri lengd sem hentar.

Að velja rétta rúllu

Til eru margar mismunandi gerðir af rúllum og því getur verið nokkuð snúið að átta sig á því hvaða rúllu á að nota. Eðli verkefnisins stýrir því hvers konar rúlla hentar best. Þú þarft því að vita hvað þú ætlar að mála og út frá því er rúllan valin. Ef um er að ræða stóra fleti er auðveldast og fljótlegast að nota stóra, loðna rúllu sem ber mikið efni. Ef þú ert að mála lita fleti eða mjög slétta fleti, þá er betra að velja litla rúllu með fínum hárum. Það sama gildir ef þú ert að velja rúllu í skurð meðfram kverkum eða brúnum, þá hentar betur að vera með litla rúllu. Það getur við vissar aðstæður hentað að skera með lítilli rúllu frekar en pensli þar sem þú sleppur þá við möguleg penslaför.

Þó það geti verið freistandi að velja ódýrustu rúlluna þá eru margir kostir við það að borga fyrir gæði. Hágæða málningarrúllu tekur yfirleitt í sig meira af efni, sem leiðir til þess að verkið vinnst hraðar. Eins eru minni líkur á að rúllan fari úr hárum, sem þú þarft svo að tína úr málningunni áður en hún þornar. Hágæðamálningarrúlla sem er vel þrifin eftir notkun getur enst mjög lengi og hægt er að nota hana aftur og aftur.

Gróf eða fín málningarrúlla?

Hárin í málningarrúllu geta bæði verið löng og stutt. Í daglegu tali er talað um fína eða grófa rúllu. Valið á lengd háranna fer eftir því hvað stendur til að mála. Grófari rúlla með löngum hárum hentar t.d. betur á grófa steinveggi þar sem dýptin í undirlaginu er meiri og hárin í rúllunni þurfa að ná dýpra í flötinn.

  • Ef þú ert að mála stóra fleti sem eru ósléttir eða grófir, er mælt með að nota rúllu með löngum hárum (18-22mm). Þessar rúllur geta líka hentað vel til að rúlla upp spartlmálningu.
  • Ef þú ert að mála fínni fleti með jafnara yfirborði hentar betur að velja rúllu með styttri hárum (10 - 18 mm). Þessar rúllur geta líka hentað vel til að mála yfir veggfóður eða filtdúk.
  • Ef þú ert að mála flöt með alveg sléttu og lokuðu yfirborði hentar vel að velja mjög fínhærða rúllu (5-8 mm) Þessar rúllur eru oft úr svampi eða örtrefjaefnum (microfiber). Þessar rúllur geta t.d. hentað vel þegar verið er að lakka húsgögn, innréttingar, borðplötur, hurðar, hurðakarma eða járn og málma.

Málningarrúllur fyrir stóra fleti

Ef þú ert að mála stóra fleti eins og til dæmis veggi, loft eða gólf, er gott að velja stóra rúllu með grófum eða milligrófum hárum. Þannig rúlla tekur meira efni í sig, sem gerir það að verkum að þú þarft ekki að dýfa rúllunni eins oft í bakkann og verkið vinnst hraðar. Með því að nota stóra rúllu getur þú líka rúllað stærra svæði í einu. Með því að nota framlengingarskaft er auðveldara að ná löngum, fallegum strokum. Skaftið tryggir betri líkamsstöðu við vinnuna og flýtir fyrir verkinu.

Málningarrúllur fyrir smærri fleti

Ef þú ert að mála smærri fleti eins og húsgögn, borðplötur, hurðar, karma o.s.frv. hentar vel að nota minni rúllu. Með því að nota litla rúllu hefur þú betri stjórn á efnisdreifingunni á litlum flötum. Litlar málningarrúllur fást í mismunandi gerðum, bæði grófar með löngum hárum og fínni rúllur með stuttum hárum sem gefa fína áferð, svamprúllur og örtrefjarúllur (microfiber). Það er kostur að reyna að notast við fína rúllu sem skilur eftir sem minnst rúlluför þegar verið er að mála húsgögn, glugga, hurðar og innréttingar sem dæmi.

Áður en þú byrjar að nota málningarrúlluna

Áður en þú byrjar að nota málningarrúlluna þína er góð regla að skola hana til að koma í veg fyrir að hún skilji eftir sig laus hár í málningunni. Skolaðu hana vel í volgu eða heitu vatni og þurrkaðu hana svo með klút. Einnig er hægt að vefja málningarlímbandi utan um þurra rúlluna og taka það svo aftur af. Þannig tekur límbandið með sér þau hár sem eru laus.

Að þrífa málningarrúllu

Það er mikilvægt að þrífa rúlluna vel að notkun lokinni. Byrjaðu á að skafa eins mikla málningu og þú getur úr rúllunnu með þar til gerðu verkfæri. Það er einnig hægt að grípa með höndunum utan um rúlluna og þrýsta málningunni úr henni þannig. Að því loknu skal þrífa rúlluna vel með volgu vatni og sápu, þar til hún hættir að gefa frá sér málningu. Látið rúlluna þorna áður en henni er pakkað til geymslu.