Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Penslar fyrir gólfmálningu

Þegar gólf eru máluð þarf bæði að mála stóra fleti og smærri fleti meðfram veggjum og í hornum. Gólfmálun krefst nákvæmni meðfram gólflistum og veggjum en á stærri flötum er hægt að mála hraðar með stærri strokum. Þess vegna er gott að vera með mismunandi stærðir af penslum við hendina þegar gólf eru máluð.
3 vörur
Frá 1.590 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir allt frá hurðum og hurðarkörmum til gluggakistna og húsgagna – einn pensill, margir möguleikar
  • Stíf gervihár gefa fallega áferð
  • Þægilegt handfang sem liggur vel í hendi
Frá 2.090 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir kantmálun á veggjum
  • Tryggir fullkomna áferð
Frá 849 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Passar fyrir hornamálara
  • Fyrir skarpar línur á veggjum
  • Tryggir fullkomna áferð
Sýni 3 vörur af 3

Penslar sem henta í gólfmálningu

Penslar fyrir gólfmálningu geta verið af ýmsum stærðum og gerðum. Þegar þú velur réttu penslana er fyrst og fremst mikilvægy að hafa í huga að vera með stóran pensil og lítinn pensil.

Stóri pensilinn flýtir fyrir þér þar sem hann tekur í sig mikla málningu og hentar þannig vel á stærri fleti. Eins er ekki óalgengt að notast sé við rúllu í stað pensils á stærri flötum. Hvort sem þú notar rúllu eða pensil, mælum við með að nota framleningarskaft til þess að auðvelda þér vinnuna. Með því má ná lengri strokum og vinna standandi í stað þess að liggja á hnjánum.

Litli pensilinn nýtist vel í hornum og til að skera meðfram veggjum eða gólflistum. Mun auðveldara er að stjórna litlum pensli í fínvinnu á þessum svæðum. Með minni pensli er auðveldara að mála beinar línur.

Þessir penslar henta á gólf:

  • Vinkilpensill
  • Flatur pensill
  • Hringlaga pensill

Vinkilpensill

Vinkilpensill hentar vel til að skera meðfram veggjum eða gólflistum. Pensillinn tekur í sig mikla málningu og þannig má mála í lengri strokum meðfram veggjunum.

Flatur pensill

Flatur pensill er góður í alla almenna málningarvinnu. Hann tekur í sig mikla málningu og gefur góða áferð. Hann hentar því vel til að mála gólf meðfram veggjum og listum.




Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.