Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Litir sem vekja tilfinningar og breyta rýminu

Nafn: Sara Garanty
Búseta: Í Stokkhólmi, Svíþjóð 
Starfsgrein: Litaráðgjafi og innanhússhönnuður með sérhæfingu í litasálfræði 
Menntun: Innanhússhönnun og litasálfræði, Barcelona Sérkenni: Veggjamálun sem meðferðaraðferð. Litirnir á heimilinu eru valdir út frá andlegu ástandi. 

Farverig stue med rosa loft, grå sofa og røde døre.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Farverigt vægmaleri med organiske former.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Mintgrøn dør med bølget kant på rosa væg.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Rosa rum med gule skabe og døre.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Gátt inn í aðra vídd 

Þetta er ekki eins og að ganga inn í íbúð. Þetta er eins og að ganga inn í huga manneskju. Staður þar sem litirnir halda sig ekki bara á veggjunum heldur flæða út fyrir þá. Eins og þeir standi út úr þeim. Og flakki á milli forma. Á milli ástands. Á milli vídda. Þeir sitja ekki um kyrrt í málningunni. Heldur hreyfa sig. Inn í mann. Hreyfa bókstaflega við manni. 

Strax í anddyrinu skellur á þér djúpblár litur og hægra megin blasir við veggmálverk. Skapað í samvinnu við listakonuna Amöndu L'Narte.  Eins og brú yfir í annað andrúmsloft. 

Markmiðið er kristaltært ... 

„Mig langaði að búa til rými þar sem þér líður eins og þú gangir inn í aðra vídd. Stað þar sem hægt er að draga andann djúpt og hugurinn getur náð algerri ró.“ 

Málverkið sjálft státar af 18 ólíkum litum, þar á meðal Flügger 1458, Flügger 1447, Arne Aksel Prince, Arne Aksel Japan og Flügger 1352. Fjölmörg lögin í málverkinu ýta undir þá tilfinningu að umbreyting eigi sér stað ... umturnun ... án þess að áhorfandinn sé njörvaður niður í eina ákveðna túlkun. 

Að koma inn á heimili Sara Garanty er eins og að opna dagbók í lit. Að lesa stefnuyfirlýsingu sem er skrifuð með litbrigðum. Hvert einasta horn, sérhver tónn og hver einasti flötur ber vott um ríkulega innri tilvist. 

„Það er snúið að skilja til fulls hvernig litirnir tengjast. Leikinn á milli þeirra. Samspilið sem á sér stað. Og hvernig þeir leika sér með ljósið. Í íbúðinni, á heimilinu, í húsinu. Litirnir eru heil vísindi út af fyrir sig.“ 

To kvinder maler et farverigt vægmaleri.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Gang med farverigt vægmaleri.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Kvinde står i en mintgrøn døråbning.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Heimili fyrir ólíkt hugarfar 

Þegar Sara lýsir litum eru þeir miklu meira en bara málningin á veggjunum. 

„Fyrir mér á liturinn ekki bara heima á yfirborðinu. Hann miðlar frá sér tíðni og titringi sem hefur áhrif á tilfinningalíf þitt.“ 

Stofuveggirnir eru málaðir í gamaldags bleikum lit sem kallast  “Pink Picnic” og loftið prýðir örlítið dekkri bleikur tónn  (“Flamingo”) til að kalla fram litaskil. Djúpvínrauður litur á klæðningu og körmum býr til andstæður við björtu bleiku tónana og myntugræn hurð bætir við leikrænni vídd.  

„Það er afar þung stemmning í samfélaginu um þessar mundir ... og til að létta lundina er bleikur besti liturinn.“ 

Hún segir að bleikur geri sig hamingjusama og fulla af orku ... eins og að opna kampavínsflösku: freyðandi, freyðandi gleði. 

„Ég hef alltaf átt erfitt með bleikan, en þessi litatónn hjálpar mér að sleppa tökunum!“ 

Hann er ekki krúttlegur. Hann gerir mann varnarlausan. Eins og fyrsti andardráttur eftir að hafa haldið í sér 

„Hann minnir mig á unglingaherbergið mitt. Það var líka bleikt, en þessi litur er öðruvísi. Hann er ekki rómantískur, það er meira eins og hann ... veiti skjól. Og bjóði upp á leiðina heim til síns sanna sjálfs.“ 

Farverig stue med rosa vægge og mintgrønne detaljer.

Gulur fyrir hvíldarrými heimilisins 

Mjúkleitur gulur er ríkjandi litur í eldhúsinu. Þessi litur er í algjöru uppáhaldi hjá Sara Garanty. Hann lyftir lundinni og skapar orku en ýtir einnig undir sjálfstraustið. 

„Þetta er ekki litur sem abbast upp á þig. Hann er mildur, opinn. Eins og innri andardráttur.“ 

Liturinn er valinn af kostgæfni því hann kallar fram bernskuminningu um hlýja sólargeisla og fagurgræn laufblöð. Minningu sem hún ber með sér eins og litakóða alla ævi. 

„Ég á mér eina minningu úr æsku ... ég er í kringum sjö ára. Við erum í Värmland og ég stend á brú. Sólin logar í hnakka mér og það er afar sérstakur grængulur tónn yfir landslaginu. Ég hef alltaf borið þennan lit með mér.“ 

Guli liturinn er eins konar framlenging á dagsbirtunni. 

Kvinde i blomstret kjole foran gule skabe.

Litir fyrir úrvinnslu tilfinninga 

Sara segir að litir geti breytt hugarástandi okkar. Litirnir á veggjunum geta róað þanið taugakerfi eða örvað og ýtt undir skapandi einbeitingu. 

„Ef ég mála yfir eitthvað er það ekki út af eftirsjá. Ég er bara komin á annan stað.“ 

Þannig fá litirnir að koma og fara. Engir litir vara að eilífu. En þeir birtast aldrei að ástæðulausu. 

 Sara vinnur með heim litanna í starfi sínu. 

„Ég segi oft að ég eigi mér mörg starfsheiti. Ég kalla mig litafræðing, litasérfræðing, litasálfræðing, litaráðgjafa.“ 

Þetta er alltaf fyrsta spurningin í nýjum verkefnum: 

„Hvað viltu kalla fram í þessu rými? Hvaða tilfinningu viltu að það færi þér?“ 

Út frá þessu velur hún litina. 

„Þetta snýst ekki bara um að eitthvað líti vel út ... fyrsta spurningin er alltaf: Hvernig mun þér líða í þessu rými?“ 

Kvinde holder en vifte med farveprøver.

Sara starfar á faglegan hátt með heim litanna.

„Ég er vön að segja að ég hafi marga titla. Stundum segi ég að ég sé litasérfræðingur, litasálfræðingur eða litaráðgjafi.“

Fyrsta spurningin í hverju verkefni er: „Hverju viltu ná fram í þessu rými? Hvaða tilfinningu á það að veita þér?“ Fyrst eftir það velur hún litina.

„Þetta snýst ekki bara um að það eigi að vera fallegt … Fyrsta spurningin er alltaf: Hvaða tilfinningu viltu upplifa í þessu rými?“

Rosa hjemmekontor med farverig stol og kunst.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Lille arbejdsplads med rosa vægge og rødt bord.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Rosa spisestue med mørk kakkelovn.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Farverigt kunstværk, bøger og blå glasskulptur.

Athugið að litir á myndum geta litið öðruvísi út en í raun. Við mælum með að þú prófir litinn fyrst með litaprufu.

Litir frekar en ótti 

Sara áttar sig á því að margt fólk óttast liti. 

„Það sem reynist fólki oft erfitt er hreinlega ótti við liti.“ 

Yfirleitt er þetta óöryggi, frekar en meðvitaður ótti. Óvissa um það hvernig maður vinnur með blæbrigði og ljós. Af þessu sökum leiðir Sara viðskiptavini sína varlega út fyrir þægindarammann. Hún útskýrir hvernig viss litbrigði geta haft áhrif á huga okkar: blár gefur ró og einbeitingu, grænn gefur jafnvægi og vellíðan, gulur ýtir undir gleði og lærdóm á meðan rauður kveikir orku. 

En getur örvað of mikið ef hann er of ríkjandi. 

Í hennar augum eru litir ekki skraut heldur grundvallarlífsskilyrði. 

„Litir eru jafn mikilvægir og svefn og mataræði.“ 

Sara nýtir nálgun sem byggir á innsæi og líkamlegri tilfinningu … þar fá skynfærin að ráða för..

„Ég mála ekki fyrir aðra. Ég tek ekki myndir fyrir Instagram. Þetta hefur með sjálfa mig að gera.  Mína eigin þörf fyrir ró.“ 

Smilende kvinde med pensel og blå maling.

Frá Värmland til Barcelona til Stokkhólms 

Sara ólst upp í gráu úthverfi Stokkhólms þar sem skólastofurnar voru hvítar og litlausar. Í Barcelona lærði hún innanhússhönnun og kynntist litasálfræði. 

„Kennararnir mínir hvöttu okkur til að nota liti ... ekki síst að kynna okkur litasálfræði. Við vorum með sérstakan litakennara í heilt ár.“ 

Þegar hún flutti aftur til Svíþjóðar árið 2018 mætti nálgun hennar efasemdum. 

„Allt var hvítt ... veggir, loft, eldhús og jafnvel gólf.“ 

Aðeins fimm manns mættu á fyrsta fyrirlestur hennar um litasálfræði. En hún hélt sínu striki.  

„Ég hef unnið út frá þessari nálgun í rúm 15 ár og finn vel að forvitni fólks hefur aukist. Fólk er farið að skynja að litirnir hafi bein áhrif.“ 

Kvinde i blomstret kjole i en rosa gang.

Staður sem maður kallar heima. 

Þá daga sem hugsanirnar eru háværar og hún þarfnast einhvers sem ekki byggir á orðum grípa litirnir í taumana. 

Litirnir eru vitni. Speglandi verkfæri sem kallar fram samhljóm, opnar fyrir heilun og myndar rými fyrir gleði og nærveru. 

„Ég hugsa ekki hlutina út frá innanhússhönnun heldur út frá innra ástandi. Ég mála ekki til að kalla fram ákveðinn stíl. Ég mála til að kalla fram jafnvægi.“ 

Hjá Sara Garanty er heimilið framlenging á taugakerfinu.

Rými sem lagar sig að henni.  

Eins og veðrabrigði í litum.  

Til að geta verið til. 

Kvinde sidder ved et bord med farveprøver.

”Málaðu út frá eigin tilfinningum. Breyttu um lit þegar þú flytur á nýjan stað.”

Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.