Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Kítti / þéttiefni

Við erum með mismunandi tegundir þéttiefna sem henta til ýmissa nota. Þú velur þá tegund af kítti sem hentar fyrir þitt verk. Öll kíttin hafa mismunandi eiginleika og sína sérstöðu, en öll eiga þau það sameiginlegt að vera auðveld í notkun skila fallegri áferð og fyrsta flokks gæðum.
7 vörur
Sýni 7 vörur af 7

Hvað er þéttiefni / kítti

Þéttiefni eða kítti er massi sem oftast er notaður til að þétta og loka ýmis konar samskeytum. Efnið kemur í túpum sem settar eru í kíttissprautu og þannig er efnið lagt. Kítti er fáanlegt í ýmsum gerðum, allt eftir því hvers konar efni það skal bindast við og við hvaða aðstæður það skal standa. Hver og ein tegund hefur sína sérstöku eiginleika og því er mikilvægt að velja rétta kíttið hverju sinni. Með réttri tegund kíttis má þétta samskeyti úr tré, stein, múr, gipsi ofl.

Hægt er að þétta samskeyti milli mismunandi byggingarefna með réttu kítti. Einnig má nota kítti til sprunguviðgerða eða annara smærri viðgerða. Kítti getur hentað til þéttinga í kringum glugga að innanverðu, við gólflista og vegglista, hurðakarma og í kringum vaska o.þ.h.

Öll eiga kíttin það sameiginlegt að hafa góða endingu og vera auðveld í notkun. Kíttið sprautast auðveldlega út úr túpunni með kíttissprautu. Gott er að strjúka létt yfir það til að það leggist jafnt. Kíttið er fáanlegt í mörgum mismunandi tegundum og sumar þeirra fást í mismunandi litum.

Þú getur notað kítti í:

  • Samskeyti og fúgur milli mismunandi byggingarefna
  • Að gera við sprungur og minni skemmdir
  • Að þétta í kringum glugga, lista og karma

Hvaða tegund af kítti á að velja?

Val á kítti ræðst fyrst og fremst af því hvað það er sem á að þétta og hvar. Kíttin hafa nefnilega öll sína sérstöðu, sem gerir það að verkum að þau henta misvel eftir aðstæðum hverju sinni.

Akrýlkítti

Akrýlkítti er sú tegund þéttiefnis sem oftast er notuð í tengslum við málningarvinnu. Akrýlkítti hentar vel til að þétta samskeyti í kverkum og milli mismunandi byggingarhluta. Eins hentar það vel í sprunguviðgerðir og viðgerðir á minni skemmdum. Akrýlkítti er þeim eiginleika gætt að það bæði lokar og þéttir samskeytum og sprungum. Að auki hefur akrýlkítti bæði loft- og hljóðeinangrandi eiginleika.

Akrýlkítti hefur góða teygjueiginleika sem þýðir að kíttið þolir töluverðar hreyfingar án þess að springa. Oft á tíðum heldur kíttið, þó að yfirmálningin springi við hreyfingar. Akrýlkítti hefur það fram yfir t.d. sílikonkítti að það er hægt að mála yfir það. Þess vegna hentar það vel til notkunar í flestum hefðbundnum málningarverkefnum. Ef þú málar yfir akrýlkíttið kemur þú líka í veg fyrir að kíttið gulni eða dofni í samskeytunum.

Sílikonkítti

Sílikonkítti eða votrýmiskítti er oftast notað í votrýmum eða á svæðum sem eru útsett fyrir raka eða vatnsálagi. Sílikonkítti hentar t.d. vel til að þétta inni á baðherbergjum, þar sem búast má við miklu rakaálagi og hitabreytingum. Það getur einnig í einhverjum tilvikum hentað til notkunar í eldhúsum í samskeyti milli veggja og borðplötu eða í kringum vaska, þar sem búast má við beinu vatnsálagi. Sílikonkítti inniheldur mygluvarnarefni sem verndar gegn myglusvepp og kemur í veg fyrir að samskeytin verði ljót, lituð og safni í sig óhreinindum.

Kítti eða spartl?

Mikilvægt er að byrja á að átta sig á umfangi og stærð á sprungum, viðgerðum, samskeytum o.s.frv. þegar tekin er ákvörðun um hvers konar þéttiefni skal nota. Ef um er að ræða stærri skemmdir er líklegt að spartl og/eða annað viðgerðarefni henti betur en kítti.