"Ég lít á heimilið mitt sem leikvöll þar sem ég get tekið áhættu og prófað nýja hluti."

Íbúð Nicolai Larsen er er ekki bara heimili heldur líka vettvangur sköpunar. Sem stílisti og rýmishönnuður er hann vanur að sjá tækifæri sem hann nýtir til að skapa breytingar. Þess vegna hefur íbúðin fengið ákveðna yfirhalningu síðan hann flutti inn fyrir þremur árum. Komdu inn og heimsæktu heimili hans og sambýlismanns hans Christian. Rólegir litir og handverk úr mörgum ferðalögum þeirra einkenna heimilið og skapa ákveðinn glæsileika, sem og persónulegt yfirbragð.

Falleg innrömmun

Frá uppáhalds staðnum sínum í eldhúsinu getur Nicolai dáðst að skærgrænu tréi. Þessi ferski græni litur á trénu veitir þeim gleði og þess vegna hafa Nicolai og Christian valið grænan lit innandyra til að skapa tengingu við útsýnið úr glugganum. Þeir hafa valið litinn "Avocado" til að prýða gluggakarminn sem býr til fallegan ramma fyrir útsýnið þeirra.

Nýir litir fyrir nýtt upphaf

Áður voru gluggakarmarnir rauðir. Íbúðin hefur verið tekin í gegn, máluð upp á nýtt, með nýjum litum. Þegar parið byrjaði að búa ákváðu þeir að fara í algjört ”make-over” á nýja heimilinu. Þeim langaði til að hefja sambúðina á að heiðra sambandið sitt og marka nýja lífið þeirra saman. Þeir völdu því alveg nýja litapallettu fyrir heimilið og skiptu út nokkrum húsgögnum í leiðinni - fyrir nýja en áður notaða hluti. Nicolai og Christian versla nefnilega mikið á nytja- og flóamörkuðum. Það sem ákveðið er að selja er selt annað hvort í Instagram-verslun Nicolai eða í verslun Christians. Þeir vilja endurnýta eins og hægt er.

Litirnir í Flügger 80 litakortinu



"Fyrir mig er mikilvægt að hlutirnir sem prýða heimili okkar séu ekki bara fallegir heldur skapi þeir sérstaka stemningu og segi sögu."



Á veggnum hangir teppi frá 9.áratugnum og silfurbakki

Aðeins sérvaldir hlutir er hengdir upp á veggi heimilisins. Þegar kemur að innanhússhönnun finnst Nicolai það vera mikilvægt atriði að það séu áhugaverðir og öðruvísi hlutir á veggjunum. Það eru engin dýr listaverk valin á veggina né þúsundir plakata. Í eldhúsinu hangir Stelton bakki sem Nicolai hefur útbúið þannig að hægt sé að hengja hann á vegg. Í svefnherberginu hangir lítið handgert teppi frá 9.áratugnum sem hann fann fyrir slikk á flóamarkaði. Textílverkið í stofunni bjó Nicolai til sjálfur og veggskúlptúrarnir voru unnir af vini hans sem er listamaður. Ólíkur efniviður og form skapa spennandi tjáningu og vekja áhuga, sem Nicolai finnst oft leiða til skemmtilegra samtala þegar gesti ber að garði.



"Grænir og bláir tónar veita okkur frið og eru uppáhalds litirnir okkar. Þess vegna eru þeir mikilvægur hluti af okkar innanhússhönnun. Við notum sjaldan hvíta og svarta liti vegna þess að þeir skapa of miklar andstæður að okkar mati."



Ekki-litir og arkitektagráir panelar

Það er meðvitað val hjá Nicolai að engin rými eru hvít. Hann fékk nóg af þeim lit á uppvaxtarárunum, þar sem hvítur réð ríkjum á æskuheimili hans. Þess vegna eru allir panelar í íbúðinni málaðir í ljósa hlýja gráa "Rock" litnum sem er innblásin af gráu panelunum sem réðu ríkjum á 6.áratugnum. Loft og veggir eru máluð í litum sem Nicolai kallar ekki-litir, hans eigið hugtak yfir liti sem eru svo dempaðir að auðvelt er að nota þá með öðrum litum. Fyrir veggina í stofunni hafa þeir valið ljósgræna litinn "Selfoss" sem með gullnu ívafi sínu leikur fallega við mjúka ljósgræna litinn "Viggó" sem er á loftinu. Dempuðu grænu litirnir skapa fallegan bakgrunn fyrir húsgögn heimilisins, þar sem gullbrúnn, djúpur blár og króm eru um allt. Í svefnherberginu er eini dökki liturinn í íbúðinni. Hér er loftið og listarnir málaðir í hlýja "Mokka" litnum sem myndar  jafnvægi við ferska ljósbláa litinn "Fine Baja" á veggjunum svo það verði ekki of þung stemming í herberginu.


Þrjú ráð frá Nicolai

  • Notaðu dökkan lit í loftinu til að skapa hlýja og notalega stemningu. Með ljósari lit á veggjum færðu gott jafnvægi og spennandi andstæðu í rýmið.
  • Notaðu mismunandi litbrigði úr sömu litafjölskyldu á bæði veggi og loft til að búa til samhangandi þráð um allt heimilið.
  • Endurnýjaðu og frískaðu upp á heimilið með nýjum litum. Það getur skapað allt aðra stemningu og á sama tíma, eins og í tilfelli Nicolai og Christian, markað nýtt upphaf á ákveðnum tíma á lífsskeiðinu.

 

1

Skoðaðu alla Flügger 80 litina

Kíktu hér