Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Glervefur

Glervefur er auðveld leið til að endurnýja veggi og loft. Glervefur styrkir líka yfirborðið og minnkar þannig líkur á rispum o.þ.h.

0 vörur
Engar vörur fundust

Hvað er glervefur?

Glervefur er dúkur sem notaður er til að klæða veggi. Hann er frábrugðinn glerfilti að því leyti að hann skilar upphleyptri, munstraðri áferð. Glervefur eykur slitstyrk flatarins og minnkar líkur á rispum o.þ.h. Glervef má nota á flestar gerðir veggja í öllum rýmum heimilisins.

Að velja glervef

Glervefur fæst bæði grunnaður og ógrunnaður. Munurinn á þeim er sá að ekki er þörf á að grunna eða fylla forgrunnaðan glervef eftir uppsetningu. Það er líka auðveldara að meðhöndla forgrunnaðan dúk þar sem hann er minna "lifandi" en sá ógrunnaði.

Uppsetning á glervef

Mikilvægt er að huga að góðri undirvinnu til að tryggja að flöturinn sé sléttur og jafn áður en hafist er handa við uppsetninguna. Það auðveldar vinnuna og eykur líkur á fallegri útkomu.

  • Til að tryggja góða viðloðun skal gæta þess að fjarlægja slípiryk með hreinsun áður en hafist er handa við að setja upp dúkinn.
  • Grunnið flötinn með Forankringsgrund bindigrunni áður en glervefurinn er settur upp.
  • Að lokinni grunnun er gott að mæla upp flötinn og bera saman við breidd dúksins áður en hafist er handa. Það auðveldar vinnuna við uppsetninguna og flýtir fyrir. Leggið hverja rönd 1-2 cm yfir þá fyrri og skerið samskeytin til að ná þeim jöfnum.
  • Rúllið líminu á flötinn með málningarrúllu. Fylgið fyrirmælum um efnisnotkun á bakhlið límdósarinnar til að tryggja að rétt magn sé notað af lími. Of mikið lím getur valdið ójafnri áferð þar sem límið þornar ekki jafnt.
  • Leggið glervefinn frá toppi og niður að gólfi. Munið að gefa 1-2 aukasentimetra á báðum endum og hliðum og skerið svo jafnt.
  • Gott er að nota veggfóðurskúst til að slétta og jafna glervefinn eftir að hann hefur verið lagður í límið.
  • Notið dúkahníf til að skera glervefinn til.

Þetta þarft þú til að setja upp glervef

  • Spartl
  • Veflím
  • Dúkahníf
  • Grunn ef um er að ræða ógrunnaðan vef