Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Click & collect
Frí frakt yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Glerfilt

Glerfilt er dúkur sem notaður er til að styrkja og binda saman vegg- eða loftafleti og þannig draga úr hættu á sprungumyndun. Dúkurinn er auðveldur í uppsetningu og skilar fallegu, jöfnu og sléttu yfirborði sem er tilbúið til málunar.
0 vörur
Engar vörur fundust

Hvað er glerfilt

Glerfilt er dúkur sem notaður er til að klæða veggi og styrkja. Hann er frábrugðinn glervef og veggfóðri að því leyti að hann er ekki með upphleyptu munstri og skilar þ.a.l sléttum fleti. Auðvelt er að mála jafna áferð yfir dúkinn vegna þess hve slétt áferðin á honum er. Hafa ber í huga við uppsetninguna að dúkurinn jafnar ekki misfellur, ójöfnur og skemmdir sem fyrir eru í veggjum. Glerfilt má nota á veggi og í loft í eldhúsum, á baðherbergjum, í forstofum og öðrum rýmum heimilisins.

Að velja glerfilt

Valið stendur á milli grunnaðs og ógrunnaðs dúks. Ef þú velur grunnað glerfilt þá skaltu huga vel að vali á þyngd dúksins. Mismunandi þyngdir af grunnuðum dúk gefa til kynna hversu mettaður hann hefur verið af grunni. Ógrunnaður dúkur er léttastur og hann þarf að grunna eftir uppsetningu til að metta yfirborð hans fyrir málun. Þyngri gerðir dúksins hafa hins vegar verið vel mettaðar af grunni og því er ekki þörf á að grunna þær fyrir málun.