Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Japanspaðar

Áður en þú málar er mikilvægt að skima yfir veggina til að leita eftir skemmdum eða ójöfnum. Japansfjöður er gott verkfæri til að nota í viðgerðum á minni skemmdum í veggjum eða loftum, sér í lagi á þröngum svæðum.
2 vörur
Frá 1.990 kr./sett
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Notað í margvísleg verkefni, t.d. viðgerðir á vegg og lofti
  • Sveigjanlegt blað veitir góða stjórn
  • Sett með 3 stk. (25/50/75 mm)
Frá 1.999 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Notað í margvísleg verkefni, t.d. viðgerðir á vegg og lofti
  • Sveigjanlegt blað veitir góða stjórn
  • Margar stærðir.
Sýni 2 vörur af 2

Hvað er japansfjöður?

Japansfjöður er spartlspaði með föstu handfangi og sveigjanlegu blaði. Sveigjanlega blaðið gerir það að verkum að mjög auðvelt er að vinna og draga spartlið, sér í lagi á minni og þröngum svæðum.

Japansfjaðrir eru fáanlegar í nokkrum stærðum og þú ættir því að geta valið þá fjöður sem hentar best hverju sinni. Japansfjaðrirnar koma í setti sem inniheldur þrjár algengustu stærðirnar:

  • 5 cm
  • 8 cm
  • 10 cm

Í hvað notar maður japansfjaðrir?

Japansfjaðrir henta vel til að nota í minni spartlviðgerðum, t.d. naglagöt og sprungur. Þær geta komið að góðum notum í viðgerðum á veggjum, loftum, tréverki, járni o.s.frv. Fjaðrirnar eru mjög meðfærilegar og nettar og henta því sérlega vel í þröngum svæðum eða í minni viðgerðir. Þær geta einnig komið að góðum notum við að spartla yfir nagla- eða skrúfuhausa á körmum eða gólflistum.

Japansfjaðrir geta líka komið að góðum notum við að skafa af gamla málningu eða veggfóður.

Þú getur notað japansfjaðrir í:

  • Viðgerðir á veggjum, loftum, tréverki og járni
  • Spörtlun yfir skrúfuhausa á gólflistum og körmum
  • Að fjarlægja gamla málningu eða veggfóður
Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.