Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.
Málningarrúllur fyrir við

Málningarrúllur fyrir við

Þegar þú velur rúllu fyrir timbur þá skiptir máli hvers eðlis verkefnið er. Tréverk innandyra (húsgögn, gluggar, karmar) er yfirleitt með sléttara yfirborði en tréverk utanhúss (grindverk, sólpallar, skjólgirðingar). Það er því allajafna gerð meiri krafa um jafna og slétta áferð við lökkun eða málun á timbri innanhúss. Þegar verið er að mála tréverk utandyra er oft á tíðum gott að nota pensil til að vinna efni ofan í raufar og sprungur í viðnum og tryggja að viðurinn mettist vel.
5 vörur
QUICK system
Frá 1.240 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir slétta fleti
  • Gefur bestu áferðina
  • Hentar vel fyrir húsgögn, hurðir og skápahurðir
QUICK system
Frá 1.840 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir hurðir, skáphurðir og innréttingar
  • Mjög slétt áferð með lágmarks rúlluförum
  • Fagleg gæði til daglegrar notkunar
QUICK system
Frá 719 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Handhægt handfang með þrýstijafnandi gúmmíhúð
  • Passar fyrir QUICK rúllur
  • Passar á framlengingarskaft
QUICK system
Frá 909 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Handhægt handfang með gúmmíklæðningu
  • Passar með málningarrúllum 10 cm / 15 cm breiðum
  • Passar á framlengingarskaft
QUICK system
Frá 1.390 kr./sett
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir hurðir, skáphurðir og innréttingar
  • Allt í einu setti – tilbúið til notkunar
  • Góð áferð á hagstæðu verði
Sýni 5 vörur af 5

Hvaða málningarrúlla hentar á timbur?

Val á réttri rúllu fyrir timbur ræðst af því hvers konar timbur skal mála. Það er nefnilega töluverður munur á að mála annars vegar þéttan, lokaðan og sléttan við, eins og t.d. borðplötur, hurðar og húsgögn, og hins vegar stóra viðarfleti utanhúss, eins og t.d. sólpalla, skjólgirðingar og þakkanta.

Málningarrúlla fyrir tréverk innahúss

Tréverk, innanhúss hefur almennt slétt og lokað yfirborð og því hentar allajfana best að nota snögghærða rúllu, svamprúllu eða örtrefjarúllu. Þessar rúllur bera minna af efni og auðvelda þér því að mála í þynnra og jafnara lagi, sem minnkar líkur á rúlluförum. Þannig auðveldar rúllan þér að ná fallegri og jafnri áferð þegar þú málar t.d. innihurðar eða innihúsgögn.

Lítil rúlla með stuttum hárum getur líka nýst vel til að mála í hornum, þar sem þú myndir venjulega þurfa að nota pensil. Með því að nota litla rúllu í stað pensils í hornum og á kanta á t.d. húsgögnum, kemur þú í veg fyrir penslaför sem geta stungið í augu og þú færð í staðinn einsleitari áferð.

Ef þú ert að mála loftaklæðningu úr timbri getur verið gott að nota milligrófa eða grófa rúllu. Breiðari og grófari rúlla ber meira efni og hentar því vel til að rúlla slíka fleti á skemmri tíma. Með því að nota framlengingarskaft má svo auðvelda loftamálunina enn meira og flýta fyrir.

Málningarrúlla fyrir tréverk utandyra

Ef þú ert að mála tréverk utandyra þá hentar yfirleitt vel að nota stærri og breiðari málningarrúllu. Þegar verið er að mála timbur utandyra þá er allajafna ekki gerð eins mikil krafa um þunna lagþykkt og slétta áferð án rúllufara. Timbrið er yfirleitt grófara og þess vegna hentar vel að nota breiða og grófa rúllu. Það á við, hvort sem um ræðir tréolíu eða þekjandi viðarvörn. Einnig er ágætt að hafa við hendina góðan, breiðan kústpensil til að vinna viðarvörnina betur ofan í viðinn.

Málningarrúlla á timbur:

  • Svamprúlla
  • Örtrefjarúlla (Microfiber)
  • Fín málningarrúlla með stuttum hárum
  • Gróf rúlla með löngum hárum (utandyra)

Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.