Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Penslar fyrir tréverk

Málun tréverks getur bæði snúist um nákvæmnisvinnu á smærri flötum og málun stærri flata þar sem langar strokur og afköst skipta meira máli. Þess vegna er mikilvægt að velja góðan pensil sem hentar í þá tegund vinnu sem fyrir liggur. Þegar mála á stóra timburfleti eins og timburklæðningu utan á húsi, grindverk, sólpall o.þ.h. getur komið sér vel að vera með breiðan pensil sem tekur í sig mikið af málningu eða viðarvörn. Þannig má bæði flýta fyrir og auðvelda sér verkið. Ef um er að ræða minni fleti, eins og t.d. garðhúsgögn, trélista o.þ.h. getur hentað betur að nota minni pensil sem auðveldar þér að ná góðri áferð á litlum flötum og í erfiðum hornum o.þ.h.
10 vörur
fsc100
Frá 2.940 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn
  • Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
  • Glæsilegt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré
fsc100
Frá 2.790 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn – besti alhliða pensillinn
  • Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
  • Stutt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré
100pcrplastic
Frá 3.590 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir útveggi og viðarverk, skáskorinn – fullkomið fyrir lóðrétta fleti
  • Sveigjanleg pensilhár draga úr skvettum og dreifa efninu á skilvirkan hátt
  • Þægilegt tveggja þátta handfang – hægt að festa á framlengingarskaft
100pcrplastic
Frá 2.140 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Góður alhliða pensill fyrir útiveggi
  • Handhægt handfang sem tryggir gott grip
  • 100% endurunnið plast
Frá 2.190 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir útveggi og timburverk utanhúss
  • Sveigjanleg pensilhár draga úr slettum og dreifa efninu jafnt
  • Handhægt handfang – festist á framlengingarskaft og nær lengra
Frá 2.690 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Til að bera á pallinn
  • Breiddin á púðanum er 8*23 cm
  • Gefur jafna ásetningu
Frá 2.090 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Passar á pallamoppuna
  • Tveir í pakka
Frá 1.590 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir allt frá hurðum og hurðarkörmum til gluggakistna og húsgagna – einn pensill, margir möguleikar
  • Stíf gervihár gefa fallega áferð
  • Þægilegt handfang sem liggur vel í hendi
Frá 1.840 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn – skáþræðir fyrir aukna nákvæmni
  • Stíf gervihár gefa fallega áferð
  • Tveggja þátta ergónómískt skaft veitir góða stjórn
100pcrplastic
Frá 849 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Góður alhliða pensill fyrir fjölbreytt verkefni
  • Endingargóð og slitsterk penslahár
  • Handfang úr 100% endurunnu plasti.
Sýni 10 vörur af 10

Penslar sem henta á tréverk

Málun tréverks getur bæði snúist um afköst á stórum svæðum eins og timburklæðningu utan á húsi, og nákvæmnisvinnu, t.d. á garðhúsgögnum og gluggalistum. Veldu góðan pensil, með hliðsjón af því verkefni sem fyrir liggur. Með því að velja réttan pensil má spara sér mikinn tíma, auðvelda sér vinnuna og hámarka líkur á fallegri áferð.

Þessir penslar henta á tréverk:

  • Flatur pensill
  • Útipensill / Kústpensill
  • Hringpensill
  • Skáskorinn pensill

Útipensill / Kústpensill

Kústpensill eða útipensill er stór og breiður pensill sem hentar vel til að mála stóra fleti. Hentar þannig vel í málun eða viðarvörn, t.d. á sólpalla, skjólveggi eða utanhússklæðningar úr timbri. Pensillinn tekur í sig mikið efni og getur þannig auðveldað og flýtt fyrir verkinu. Gott er að nota kústpensil á stóra timburfleti en hafa jafnframt minni pensil við hendina til að ná til minni svæða og svæða þar sem meiri nákvæmni er krafist.

Flatur pensill

Flatur pensill er góður alhliða pensill sem hentar í flestar gerðir málningarvinnu, þ.m.t. málun tréverks. Hann tekur í sig mikið af málningu og skilar góðri áferð. Flatur pensill hentar vel á tréhúsgögn, panelklæðningar, karma, lista og annað tréverk innandyra sem utan.

Hringpensill

Hringpensill hentar vel til að bletta og í smáviðgerðir á tréverki, bæði innandyra og utan. Hringpensill getur hentað vel til að mála húsgögn eða í nákvæmnisvinnu, t.d gluggapósta og hurðakarma.

Skáskorinn pensill

Skáskorinn pensill hentar sérstaklega vel í nákvæmnisvinnu. Með skáskornum pensli er auðveldara að mála beinar línur. t.d. í skurði meðfram hornum, hurðum, gluggum eða gólfum. Eins hentar vel að nota skáskorinn pensil í fínvinnu á tréverki utandyra eða til að mála tréglugga og hurðir.




Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.