Penslar fyrir panel

- Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn
- Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
- Glæsilegt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré

- Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn – besti alhliða pensillinn
- Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
- Stutt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré

- Fyrir allt frá hurðum og hurðarkörmum til gluggakistna og húsgagna – einn pensill, margir möguleikar
- Stíf gervihár gefa fallega áferð
- Þægilegt handfang sem liggur vel í hendi

- Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn – skáþræðir fyrir aukna nákvæmni
- Stíf gervihár gefa fallega áferð
- Tveggja þátta ergónómískt skaft veitir góða stjórn

- Fyrir glugga og lista – þegar nákvæmni skiptir máli
- Stíf gervihár gefa fallega áferð
- Handhægt handfang sem tryggir gott grip og nákvæmni

- Góður alhliða pensill fyrir fjölbreytt verkefni
- Endingargóð og slitsterk penslahár
- Handfang úr 100% endurunnu plasti.
Penslar sem henta á panel og karma
Það er hægt að nota margar gerðir pensla til að mála karma og panel. Það mikilvægasta er að pensillinn geti tekið mikla málningu í sig til þess að hægt sé að mála eftir panelborðinu endilöngu án þess að stoppa á miðri leið og eiga á hættu að fá skil. Einnig er mikilvægt að vera með minni pensil sem hentar til að mála kanta og brúnir með nákvæmni. T.d. þegar þú vilt mála utanvert á hurðakarma, án þess að mála út á vegg.
Þessir penslar henta á panel og karma:
- Flatur pensill
- Skáskorinn pensill
- Spísspensill
Flatur pensill
Flatur pensill gefur góða áferð og hentar vel á panel, karma, gólflista o.þ.h. Flatur hausinn á penslinum gerir það að verkum að auðvelt er að mála stærri fleti eins og panelborð. Pensillinn tekur líka í sig mikla málningu og því er hægt að mála með löngum, fallegum pensilstrokum.
Skáskorinn pensill
Skáskorinn pensill hentar sérlega vel til að mála beinar línur á þröngum svæðum, t.d. milli gluggakarma og veggja. Skáskorinn pensill auðveldar alla nákvæmnisvinnu við málun á panel og körmum og gefur um leið góða áferð.
Spísspensill
Spísspensill hentar vel til að mála lista. Hann er góður í minni verkefni og nákvæmnisvinnu í hornum þar sem erfitt getur verið að koma hefðbundnum pensli að. Hann hentar því líka vel á panel og karma, þar sem smáatriðin og nákvæmni skipta miklu máli.



