Fara að aðalefni
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Flügger logo in black.

Penslar fyrir gluggamálningu

Að mála glugga er nákvæmnisvinna. Gæta þarf þess að mála hvorki út á glerið né veggina. Veldu lítinn pensil sem hentar í minni verkefni. Með réttum pensli má auðvelda verkið og tryggja betri áferð.
3 vörur
fsc100
Frá 2.940 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir hurðir, karma, gluggakistur og húsgögn
  • Sérlega mjúk hár tryggja fullkomna áferð án ráka
  • Glæsilegt handhægt handfang úr slípuðu FSC-vottuðu beykitré
Frá 1.590 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir allt frá hurðum og hurðarkörmum til gluggakistna og húsgagna – einn pensill, margir möguleikar
  • Stíf gervihár gefa fallega áferð
  • Þægilegt handfang sem liggur vel í hendi
Frá 1.340 kr./stk.
+ mögulegur sendingarkostnaður
Gæði
  • Fyrir glugga og lista – þegar nákvæmni skiptir máli
  • Stíf gervihár gefa fallega áferð
  • Handhægt handfang sem tryggir gott grip og nákvæmni
Sýni 3 vörur af 3

Penslar sem henta í gluggamálun

Að mála glugga, hurðar og karma er mikil nákvæmnisvinna. Í svona verkefnum borgar sig því reyna að velja pensil sem auðveldar þér að mála hreinar og beinar línur. Hægt er að velja um margar tegundir og stærðir pensla, sem auðvelda þér að ná góðri áferð á bæði karma og gluggapósta

Þessir penslar henta í gluggamálun:

  • Hringpensill
  • Sporöskjulaga pensill (Oval pensill)
  • Spísspensill
  • Skáskorinn pensill

Hringpensill

Hringpensill hentar vel í flest minni málningaverkefni, þar með talið málun glugga. Pensillinn er fáanlegur í mismunandi stærðum og því ætti að vera auðvelt að finna þá stærð sem hentar hverju sinni.

Sporöskjulaga (Oval) pensill

Sporöskjulaga pensilinn hentar sérlega vel til í fínvinnu og nákvæmnismálun. Formið á penslinum gerir það að verkum að auðvelt er að mála með honum beinar línur. Hann hentar því vel í að mála minni fleti eins og gluggakarma.

Spísspensill

Spísspensill er góður til að mála mjóa gluggalista eða gluggapósta. Pensillinn er lítill og nettur og auðvelt er að stjórna honum. Hann nýtur sín því best á minni flötum, t.d. utan á körmum, á listum og í útskurði.

Skáskorinn pensill

Skáskorinn pensill hentar vel þar sem gerð er krafa um nákvæm vinnubrögð. Skáskorin hárin á penslinum auðvelda þér að mála beinar og fallegar línur með nákvæmum hætti. Hann hentar vel þar sem gerð er krafa um góða áferð í lokaumferð á gluggum, körmum o.þ.h.




Copyright © 2026, Flügger group A/S, Islevdalvej 151, 2610 Rødovre, CVR-nr.: 32788718. All Rights Reserved.