Gefðu húsgögnum nýtt útlit með KABRIC
Ef þig langar í skapandi en ekki of viðamikið verkefni mælum við með því að nota KABRIC á húsgögn sem væri gaman að hressa aðeins upp á. Ítarlegri leiðbeiningar og hugmyndir fyrir neðan.
Mynd: @julias_verden, Farge: KABRIC Silver Fox
Mynd: @nannafoynberg, Farge: KABRIC Linen
Svona er ferlið
Áður en þú notar KABRIC þarf að hreinsa og slípa yfirborðsfletina og grunna þá
Berðu eina umferð af KABRIC á til að fá góðan grunn
Pússaðu niður misfellur og brúnir áður en þú berð á aðra umferð
Berðu eitt lag enn („millilag“) af KABRIC á brúnirnar og í hornin til að hafa allt sallafínt áður en síðasta umferðin fer á
Milli umferða þarf alltaf að pússa brúnir og horn með sandpappír til að mýkja og slétta
Berðu þriðju umferðina af KABRIC á. Í þessari umferð þarf ekki að hafa áhyggjur af brúnum og hornum heldur fyrst og fremst að gæta þess að skapa fallegan lokafrágang
Pússaðu yfirborðið svo það verði fallegt og mjúkt viðkomu og berðu að lokum á tvær umferðir af möttu lakki










