Búðu til skarpar brúnir með málningarlímbandi
Sjáðu hvernig á að búa til skarpar brúnir á milli tveggja lita á veggnum. Skörp brún skapar frábær útkomu en getur verið erfitt að ná ef þú kannt ekki réttu málningarbrögðin.
Hvernig á að gera skarpar brúnir með málningarlímbandi - skref fyrir skref
Málaðu allan vegginn í grunnlit nr 1 - láttu málninguna þorna
Límdu límbandið þar sem þú vilt að brúnin á milli litanna tveggja sé
Málaðu svo yfir brún límbandsins með grunnlit nr 1 eins og sést á myndbandinu - látið málninguna þorna
Með því að mála yfir brún límbandsins er límbandinu lokað, þannig að næsti litur rennur ekki undir.
Mála yfir vegginn og teipa kant með lit nr 2 - látið málninguna þorna
Mála nýjan vegg og teipa kant með lit nr 2
Fjarlægðu límbandið hægt og rólega á meðan málningin er enn blaut og rök
Mundu að teipið verður að fjarlægja strax eftir að það hefur verið yfirmálað í 2. skiptið, annars getur málningin brennt sig fasta við. Kíktu við hjá þinni næstu verslun og heyrðu meira um möguleikana á því að gera skarpar brúnir í t.d. stofu, eldhús eða svefnherbergi. Endilega komið með myndir af viðkomandi herbergi.
Vörur sem þú þarft
Veggjamálning
Hyljið herbergið vel
Fáðu fjölda góðra ráðlegginga um hvernig á að hylja herbergið áður en málað er.
Í leiðbeiningunumsýnum við hversu mikilvæg verkfærin eru fyrir málningarverkefnið, m.a. límband og vörslupappír.
Rétt aðferð til að mála
Veistu til dæmis hvernig á að mála blautt í blautt?
Sjáðu hvernig á að ná frábærri loka útkomu þegar málað er hér.








