Skip menu
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

PRO-kerfið: Frá undirbúningi að fullmáluðum vegg

Góður undirbúningur skiptir sköpum fyrir lokaútkomuna. LSR Pro, Wall Primer Pro og Flutex Pro 7 mynda saman heildstætt kerfi fyrir helstu skref verksins, allt frá því að slétta undirlagið að fullmáluðum vegg.

Við faglega málningarvinnu skiptir hvert skref máli, ekki aðeins málningin sem er notuð í lokin. Undirlagið þarf að vera slétt og rétt undirbúið áður en grunnmálning og veggjamálning eru borin á.

LSR Pro, Wall Primer Pro og Flutex Pro 7 gegna hvert sínu hlutverki í ferlinu, frá undirbúningi undirlagsins að fullunnu yfirborði.

1. Slétt undirlag með LSR Pro

Fyrsta skrefið er að tryggja að undirlagið sé slétt.

Sandplast LSR Pro er tilbúið sprautu- og rúlluspartl fyrir þurrrými sem er ætlað til að slétta bæði loft og veggi.

Spartlið hefur góða fylligetu og litla rýrnun og er auðvelt að bera á og slípa. Það má bera á með Airless-sprautu eða spartlrúllu, eftir því hvað hentar verkefninu, og slétta síðan með breiðspaða.

Þegar spartlið hefur þornað er yfirborðið slípað og gert tilbúið fyrir næsta skref.

2. Jafnt og mett undirlag með Wall Primer Pro

Eftir spörtlun og slípun er komið að grunnmálningunni.

Wall Primer Pro er þykk, mött grunnmálning sem tryggir jafnt og mett undirlag áður en veggjamálningin er borin á. Hana má meðal annars nota á múr, steypu, gifsplötur og slípuð yfirborð, auk glerfilts, glervefs og trefjafilts.

Grunnmálninguna má bera á með pensli, rúllu eða úða og hún skilur eftir matt, hvítt yfirborð. Grunnað undirlag dregur jafnframt úr ísogi og þar með málningarnotkun.

Wall Primer Pro er ætlað til notkunar með málningu úr Flügger Pro-línunni í þeim lit og gljástigi sem óskað er eftir.

3. Ljúktu verkinu með Flutex Pro 7

Þegar undirlagið hefur verið undirbúið og grunnað er komið að síðasta skrefinu.

Flutex Pro 7 er mött veggjamálning með gljástig 7. Hún gefur jafna yfirborðsáferð með sýnilegum gljáa og sérstaklega slitsterka lokaáferð.

Málninguna má bera á með pensli, rúllu eða úða og yfirborðið þolir hefðbundin þrif og blettahreinsun með mildum hreinsiefnum.

Flutex Pro 7 hentar meðal annars á steypu, gifs og múrhúð, auk áður málaðra yfirborða. Mælt er með henni í rými þar sem miklar kröfur eru gerðar til notagildis og yfirborð verður fyrir óhreinindum og sliti. Flügger mælir með Wall Primer Pro sem grunnmálningu áður en Flutex Pro 7 er borin á.

Hugsaðu um verkið í heild

Góð lokaútkoma byggist á öllum skrefum verksins, allt frá spörtlun og grunnmálun að síðasta lagi málningar. Þess vegna borgar sig að huga að ferlinu í heild frá upphafi.

Með LSR Pro, Wall Primer Pro og Flutex Pro 7 geturðu unnið skref fyrir skref, allt frá því að slétta undirlagið að fullmáluðu yfirborði, og valið verkfæri og aðferð eftir því hvað hentar verkefninu hverju sinni.

Kynntu þér vörurnar á heimasíðu Flügger:

 

LSR PRO

Wall Primer Pro

Flutex Pro