
Oktoberfest hjá Flügger
Þann 2. október héldum við Oktoberfest í verslun okkar í Reykjavík.
Það var líf og fjör, góð stemning og sérstaklega gaman að hitta málarana okkar í aðeins
öðruvísi umhverfi en dagsdaglega. Boðið var upp á skemmtidagskrá, lifandi tónlist og happdrætti
með glæsilegum vinningum. Við þökkum öllum sem mættu og áttu með okkur ánægjulegt kvöld.
Það er alltaf jafn dýrmætt að hittast, spjalla og styrkja góð tengsl.
Takk fyrir komuna – sjáumst á næsta viðburði!





