Spartlspaði
Spartl nýtist til ýmissa verka, m.a. til heilspörtlunar og til spörtlunar samskeyta á gipsplötum. Einnig má nota spartl til að slétta grófa veggi eða breyta ásýnd þeirra, t.d. með lituðu Detale CPH skrautspartli.
Öll spartlverkefni krefjast réttra verkfæra og nauðsynlegt er að velja góðan spartlspaða. Breiður spartlspaði er ómissandi við spörtlun á stórum flötum þar sem hann flýtir fyrir og auðveldar verkið. Á sama tíma tryggir þú að flöturinn fái jafna og góða áferð.

- Til heilspörslunar á veggjum og loftum
- Létt og með handhægu gripi
- Fæst í mismunandi breiddum

- Spartlspaði fyrir heilspörslun á veggjum og loftum
- Létt og með þægilegu handfangi
- Fæst í mismunandi breiddum

- Fullkomin til að dreifa fúgu á milli flísa
- Létt og með þægilegu handhægu handfangi
- Auðveldur í notkun og þrifum

- Handhæg hönnun
- Fullkomið fyrir lítil og stór verkefni
- Auðvelt að þrífa

- Passar á Glitterspaðana
- Handfang hannað fyrir hámarks þægindi
- Lengd: 2 m

Hvað er spartlspaði?
Spartlspaði er samsettur af breiðu blaði með áföstu handfangi. Spartlspaðinn er hannaður með notendavænu, hallandi handfangi sem tryggir rétta handstöðu og betri líkamsbeitingu og gerir þannig spörtlunina auðveldari.
Í hvað nýtist spartlspaði?
Spartlspaði hentar aðallega til spörtlunar á stórum flötum. Með spartlspaðanum er auðveldara að draga úr spartlinu og ná sléttri og jafnri áferð. Breiða blaðið og hönnun handfangsins gera alla spörtlun auðveldari - hvort sem um ræðir heilspörtlun lofta og/eða veggja, samkeytaspörtlun gipsplatna eða votrýmisspörtlun.
Spartlspaðann má nota með öllum tegundum spartls. Blaðið á spaðanum er sterkt og hann nýtist því ekki bara við spörtlun heldur er hann einnig góður til að fjarlægja gamalt veggfóður og málningu.
Þú getur notað spartlspaðann í:
- Heilspörtlun á stórum flötum, t.d. loftum og veggjum.
- Samskeytaspörtlun á gipsplötum eða í votrýmum
- Að fjarlægja gamalt veggfóður eða málningu



