Það er mjög mikilvægt að veita viðskiptavinum sínum ætíð faglega aðstoð fólks sem kann til verka. Flügger-málningarverslanakeðjan hefur alltaf tryggt mikil gæði, bæði hvað varðar vörur og þjónustu við viðskiptavini, og okkur er annt um það orðspor.
En þannig orðspor verður ekki til af sjálfu sér. Þér og starfsfólki þínu er boðið ókeypis fræðsluefni þar sem ykkur eru veittar allar nauðsynlegar upplýsingar um vöruúrvalið hjá Flügger, málningartækni og -vinnutilhögun ásamt persónulegri sölu. Þú öðlast þar sérfræðiþekkingu á «Gráu möppunni», stóru málningarhandbókinni frá Flügger og getur auk þess nýtt þér ráðgjöf frá þjónustudeild okkar í síma 567 4400.