Um Flügger

Saga Flügger


1890 Flügger tekur til starfa í Danmörku

1. nóvember 1890

Var sett á laggirnar útibú frá J. D. Flügger í Kaupmannahöfn. Móðurfyrirtækið J. D. Flügger í Hamborg var ein elsta málningarverksmiðja Evrópu en hún var lögð niður árið 1973, áratug áður en hægt hefði verið að fagna tveggja alda starfsafmæli.

1948 Flügger kemst á danskar hendur 

Að síðari heimsstyrjöld lokinni gerði danska ríkið allar þýskar eigur í Danmörku upptækar. Þetta átti líka við um útibú J. D. Flügger sem var keypt af ríkinu af Mich. Schnack en hann hafði verið forstjóri fyrirtækisins síðan 1941.

1948: Velta 2,4 milljónir danskra króna - 20 starfsmenn.

1958 Flügger reisir verksmiðju í Rødovre

Árið 1958 flutti fyrirtækið aðsetur sitt úr miðborg Kaupmannahafnar í nýja verksmiðju og höfuðstöðvar í úthverfinu Rødovre. Þar með hófst framleiðsla á húsamálningu af bestu gæðum og jókst hún stöðugt.

1958: Velta 3,4 milljónir danskra króna. - 31 starfsmaður.

1970 Flügger reisir verksmiðju í Kolding

Lóðin í Rødovre var orðin fullnýtt á sjöunda áratug. Á árunum 1969 til -70 keypti fyrirtækið stóra lóð í Kolding og reisti þar nýja verksmiðju sem ætlað var að framleiða vatnsþynnanlega málningu. Árið 1970 var svo fyrirtækinu breytt í hlutafélag þegar næsta kynslóð tók við stöðu forstjóra, það er sonurinn Ulf Schnack. Hlutafé var samsvarandi eigið fé fyrirtækisins eða um ein milljón danskra króna.

1970: Velta 33 milljónir danskra króna - 175 starfsmenn.

1975 Flügger stofnar verslanakeðju

Olíukreppan fyrsta á árunum 1973-74 dró mjög úr húsbyggingum í Danmörku. Á sama tíma misstu málarar það einkaleyfi sem þeir höfðu haft á endurnýjun leigu- og búsetahúsnæðis við leigjendaskipti. Í framhaldi af því stofnaði Flügger verslanakeðju í samstarfi við nokkurn hóp málarameistara. Flügger hóf einnig starfsemi í Noregi um miðjan áttunda áratuginn og stofnaði sölufyrirtækið Color í Danmörku.

1975/76: Velta 97 milljónir danskra króna - 206 starfsmenn.

1978 Verksmiðja Flügger í Kolding brennur

Sumarið 1978 kom upp eldur í verksmiðju Flügger í Kolding vegna óaðgæslu við þakvinnu. Verksmiðjan var endurreist og enn þann dag í dag er hún talin vera í fremstu röð hvað varðar framleiðslu umhverfisvænna vatnsþynnanlegra málningarvara.

1978/79: Velta 142 milljónir danskra króna - 269 starfsmenn.

1983 Flügger skráð í kauphöll

Haustið 1983 var tekin ákvörðun um að skrá fyrirtækið í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Skráningargengi var 875 sem jafngildi genginu 52 á hvern 20 DKK hlut í dag þegar tekið hefur verið tillit til jöfnunarhlutabréfa og breytinga á stærð hluta.

1983/84: Velta 242 milljónir danskra króna - 291 starfsmenn.

1984-85 Flügger kaupir ný fyrirtæki

Hagnaðurinn af skráningunni í kauphöll gerði Flügger kleift að kaupa fyrirtækið Fiona, stærsta veggfóðursframleiðanda Danmerkur, og Dansk Smergelfabrik, eina framleiðanda slípiefna í Danmörku. Bæði fyrirtækin hafa síðan sameinast Flügger A/S. Í Svíþjóð keypti fyrirtækið pensla- og málningarrúlluframleiðendurna Stiwex AB og Forsbergs børstefabrik en fyrirtækin voru síðar sameinuð undir heitinu Stiwex AB.

1984/85: Velta 289 milljónir danskra króna - 415 starfsmenn.

1993-95 Flügger kaupir verksmiðju í Sverige

Um áramótin 1993 og -94 keypti fyrirtækið þriðju stærstu málningarverksmiðju Svíþjóðar, HP Färg & Kemi AB, en það hefur síðan tekið upp heitið Flügger AB. Fjögurra mánaða rekstur þess fyrirtækis er tekinn með í ársreikningum tímabilsins 1993 til -94. Flügger sameinaði svo norskt dótturfyrirtæki HP og Flügger Norge A/S, en dótturfyrirtækið PP Mester Maling A/S í Danmörku var áfram hluti af Flügger-samsteypunni.

1994/95: Velta 845 milljónir danskra króna - 900 starfsmenn.

1995-98 Skandinavísk útrás hefst

Flügger kom upp nýjum höfuðbirgðageymslum í Gautaborg með rými fyrir 11.500 bretti en þeim var ætlað að þjóna sænskum og norskum markaði. Um svipað leyti fékk samsteypan til liðs við sig norðurjóskan heildsala, nokkrar málningarvöruverslanir í  Noregi og AdeKema AB í Borås í Svíþjóð sem framleiðir hreingerningaefni.

1997/98: Velta 1.035 milljónir danskra króna - 1.056 starfsmenn.

1999-2003 Flügger styrkir stöðu sína

Frá árunum 1999-2003 hefur fyrirtækið einkum stefnt að því að fastmóta skipulag sitt með samræmdum hugmyndum um framleiðslu, dreifingu, markaðssetningu og yfirstjórnun. Það var forgangsverkefni að styrkja reksturinn og gera hann hagkvæman með þeim árangri að markviss söluaukning varð.

2002/03: Velta 1.092 milljónir danskra króna - 1.007 starfsmenn.

2004 Flügger kaupir HörpuSjöfn á Íslandi

Árið 2004 keypti Flügger HörpuSjöfn á Íslandi. Flügger er þar með komið i fremstu röð á sínu sviði á vestnorræna svæðinu. Með kaupunum heldur Flügger áfram stefnu sinni um aukinn hlut á norrænum markaði.

2004- Veðjað á sjálfbæran vöxt

Upp á síðkastið hefur fyrirtækið kosið að veðja á sjálfbæran og hagkvæman vöxt. Flügger heldur áfram að styrkja stöðu sína í Danmörku, stækka dreifingarnet sitt í Svíþjóð, Noregi og Póllandi og að færa út kvíarnar í alþjóðlegu samhengi.

2003/04: Velta 1.111 milljónir danskra króna - 1.007 starfsmenn.