Eitt er að fá hugmynd um hvernig hægt sé að fegra húsið að utan, allt annað mál að framkvæma það þannig að sómi sé að – og verði það lengi. Í þessu riti er að finna hollráð og hugmyndir um hvernig hægt er að láta útveggi eða viðarveggi ganga í endurnýjun lífdaga. Ef þú fylgir leiðbeiningunum geturðu treyst því að ná góðum árangri og að húsið þoli hverskyns veður og notkun um langa hríð. Flügger býður nefnilega ekki bara upp á hugmyndir og tillögur heldur líka hollráð í samræmi við þá gæðavöru sem við seljum. Og svo verslar þú á sama stað og málarameistarinn.