Málið sjálf

Ábendingar um hreinsun á penslum og rúllum


Að hreinsa pensla og rúllur

Ef þú varst að nota vatnsþynnanlega málningu er langbest að nota Flügger 36 grænsápu til þess að þvo pensla og rúllur. Ef þú hefur notað olíumálningu skaltu fyrst hreinsa þá upp úr terpentínu og þvo þá svo. Það má líka nota venjulegt uppþvottaefni í stað grænsápu.

Penslar er þvegnir þannig að hárin eru nudduð með fingrunum. Rúllum er best að rúlla fram og aftur í þvottalaug eða fati um leið og þrýst er á. Penslar og rúllur eru orðin hreinar þegar skolvatnið er hætt að litast.

Ef þú hefur notað vatnsþynnanlega málningu er hægt að pakka penslum og rúllum í þétta plastpoka þegar vinnu dagsins lýkur. Þá má halda áfram að nota þá næsta dag að því gefnu að áfram sé málað með sama lit. Það er einnig hægt að pakka málningarbakkanum inn í plast ef það á að nota hann áfram næsta dag.

Þegar einu verkefni lýkur á alltaf að hreinsa pensla og rúllur um leið og klárað er, annars eyðileggjast áhöldin. Það tekur ekki marga klukkutíma áður en þau eru orðin skraufþurr og ónothæf.

Að þurrka pensla

Þegar þú hefur þvegið pensilinn þinn er hægt að hraðþurrka hann með því að halda skaftinu á milli handa sér og velta því hratt fram og aftur (eins og steinaldarmenn gerðu eld!). Mundu þó að halda penslinum niðri í vaski eða fötu, annars slettist á þig!