Málið sjálf

Sandpappír


Grófleiki 40 og 60  Notaður til að grófslípa veggi, til að fjarlægja yfirborðsefni o.s.frv.. 

 

 

Grófleiki 80 og 100  Notaður til að slípa þar sem jafna þarf og slétta, t.d. renninga, spartlaða jaðra o.s.frv..

 

 

Grófleiki 120  Fyrir grófa lokapússun á spartlmassa áður en farið er yfir með veggmálningu o.s.frv..

 

Grófleiki 180 og 240  Fyrir lokapússun á spartlmassa áður en farið er yfir með málningu með miklum gljáa, viðarmeðferð o.s.frv.

 

Vatnssandpappír fæst í grófleika 320 fyrir grófari vinnu og grófleika 500 fyrir  lokapússun. Séu fletirnir sérstaklega sléttir og fíngerðir kemur til greina að nota grófleika 800.  

Best er að nota sandpappírsræmur á heitavatnsrör og önnur rör. Þau auðvelda þér vinnuna og útkoman verður betri.