Málið sjálf

Penslar


Gluggalistapensill 

Þessi pensill er með sérstökum túlípanaformuðum haus og hentar vel til að mála inn að t.d. gluggum, upp að rúðu eða einangrunarlista. Pensillinn hentar ekki á stóra fleti.

 
Hringpensill

Hann hefur aðra lögun en gluggalistapensillinn en hentar við kverkar þegar verið er að mála glugga, dyrakarma eða húsgögn.

 
Ávalur pensill

Góður allsherjarpensill sem nota má mjög víða, allt eftir því hvernig burst hann er með. Það má t.d. nota hann í kverk á milli veggs og lofts, á dyrakarma, gerefti, hurðar o.þ.h.. Ávala pensla má nota til fjöldamargs því þeir hafa tvær breiddir, allt eftir því hvernig þeim er beitt.

 
Flatur pensill

Hentar vel til þess að bera þunnt efni á stóra fleti vegna þess að t.d. lakk breiðist vel og jafnt út á skápahurðum og dyrum. Hann hentar þó ekki til að mála að línum.

 
Vinkilpensill

Með þessum pensli er hægt að mála þar sem annars væri erfitt að komast að, t.d. að baki ofnum og rörum.

 
Stór flatur pensill

Þessi pensill tekur mikið af málningu eða grunnefni og hentar þess vegna vel í grófari verk, t.d. á veggi, loft, útveggi o.s.frv.. Við þær aðstæður má einnig nota hann til að mála að línum.