Málið sjálf

Vegg


Réttir litir geta dregið fram einkenni og stíl herbergisins. Þeir geta bæði látið það sýnast stærra og bjartara eða minna og dekkra en það í raun er. Litir eiga t.d. þátt í því að draga athygli að bæði húsgögnum og málverkum. Málaður veggur þolir þar að auki töluvert álag, auk þess sem auðvelt er að halda honum við og hreinsa hann. Hægt er að ná fram einfaldri og glæsilegri áferð með því einu að mála aðeins einn vegg sem t.d. er hægt að ramma inn með hvítri 10 sm breiðri skrautræmu. Það er einnig hægt að ná fram smekklegri áferð með blæbrigðamálningu og dúpptækni. Leitaðu aðstoðar í næstu Flügger-málningar-verslun


PDF: Hvernig á að mála veggi innanhús Prófaðu að leika þér með liti
  • Breiddu yfir

    Breiddu yfir gólf, húsgögn o.þ.h. með plastábreiðu.

  • Gerðu hreint og slípaðu

    Þvoðu vegginn vel með svampi og vatni sem blandað er Flügger 37 fjölhreinsi í hlutföllunum 10:1. Ef á veggnum er gömul málning sem flagnar af á að fjarlægja hana að því marki sem mögulegt er. Notaðu sköfu eða spaða. Að lokum skaltu slípa brúnir og allar ójöfnur. Slípaðu gljáandi fleti eða fleti málaða með alkýð- eða olíumálningu með sandpappír nr. 60 eða 80.

  • Spartlaðu

    Skafðu vel úr öllum sprungum og holum. Bleyttu þær með rökum pensli og spartlaðu í með Flügger Sandplast LH. Hægt er að loka rifum á milli veggjar og lista eða karma með Flügger akrýlkítti. Grunnaðu því næst stóra viðgerða fleti, sandspartl og gljúpa fleti, með Flügger Forankringsgrunder. Láttu grunninn þorna í 6-8 klukkustundir.

  • Málaðu

    Málaðu vegginn tvisvar. Málaðu erfiðu svæðin, meðfram þiljum, upp að lofti og í horn og á bak við ofna með hornapensli og svo veggina sjálfa með rúllu. Ef þú málar með dökkum lit skiptir miklu að enda á því að rúlla ísömu átt.