Málið sjálf

Veggfóður


Veggfóður býr yfir mörgum spennandi kostum. Allir geta fundið liti, mynstur og myndefni við sitt hæfi og sem henta aðstæðum. Þú getur hannað íbúðina nær algjörlega eftir eigin höfði með öllum nýju mynstrunum og skrautlistunum. Þér er velkomið að fá veggfóðurbók Flügger lánaða með þér heim hvenær sem er, þannig að þú getir gefið þér góðan tíma til þess að kynna þér alla möguleikana sem í boði eru.


PDF: Hvernig á að setja upp veggfóðurHér sérðu þær fjölmörgu tegundir sem við bjóðum uppá í veggfóðri
  • Skerðu nokkrar lengjur til

    Útbúðu límið samkvæmt leiðbeiningum og berðu það svo á í hæfilegu magni. Byrjaðu út frá lengjunni miðri og strjúktu líminu í átt til jaðranna með veggfóðurkústi.

  • Þegar búið er að bera á alla lengjuna brýtur þú hana saman eins

    Og sýnt er á myndunum. Berðu á 3-4 lengjur í einu, láttu bíða í 5-10 mín áður en þú setur upp. Á sumar tegundum þarf límið að bíða á í 15 mín.

  • Settu vegfóðrið upp.

    Leggðu fyrstu lengjuna eftir lóðsnúru og gættu þess að hún falli rétt. Komdu lengjunni fyrir efst á veggnum, ýttu henni varlega á sinn stað og réttu af, svo koll af kolli. Ef þú ert í vafa hvort lóðið sé hornrétt á vegginn þá skaltu setja 1-2 sm ofar og skera síðan ofanaf.

  • Með veggfóðurkúst sléttarðu

    Fyrst úr og svo niður eftir lengjunni miðri svo í átt til jaðranna. Þrýstu lengjunni alveg niður að gólflistum og rífðu svo sem af gengur með stórum spaða. Svo næstu upp og svo koll af kolli. Bestur árangur næst með því að leggja lengjurnar brún í brún án þess að skarist.

  • Í kringum innstungur og dyr

    Veggfóðrið skorið eins og á myndunum. Gættu þess að það liggi alveg þétt í hornum og á jöðrum, klipptu svo með skærum eða með veggfóðurshníf.

Áður en þú setur upp veggfóður

Þegar veggfóður er valið þarf að taka tillit til aðstæðna. Sé líklegt að veggfóðrið óhreinkist af fitu og óhreinindum þarf að velja tegund sem hægt er að þvo. Sé álag lítið er hægt að velja tegund sem aðeins þolir að létt sé strokið af.

Gerðu ráð fyrir því að hver rúlla af veggfóðri dugi í 3-4 lengjur. Hver veggfóðursrúlla er 10,05 m löng og 0,53 m breið þannig að ef þú mælir vegghæðina og telur fjölda 53 sm breiðra lengja geturðu reiknað út hve margar rúllur þú þarft. Það er alltaf hægt að skila ónotuðum rúllum í Flüggermálningarverslunum svo þú skalt kaupa eina aukarúllu í öryggisskyni. Kauptu allt veggfóðrið samtímis til þess að fá örugglega rúllur með nákvæmlega sama mynstri og litbrigðum.

Ef veggfóðrið er mynstrað þarf oft að hliðra hverri lengju upp eða niður. Á merkimiðanum er hægt að sjá svonefnd rapport-tákn sem sýnir hvort hliðra þarf veggfóðrinu, og hve mikið, eða ekki.