Hreinsaðu flötinn vel með Fluren 37 fjölhreinsi, þynntu samkvæmt leiðbeiningum og skolaðu vandlega af með hreinu vatni. Mattaðu flötinn með sandpappír nr. 80 eða 120 og þurrkaðu svo af.
Grunnaðu viðinn með Interior Heftigrunn, þynntu með allt að 10% vatni. Slípaðu aftur með sandpappír nr. 120 eða 180 og þurrkaðu af.
Kíttað í holur, sprungur með akrýlkítti eða akrýlfúgumassa, farið yfir með rökum pensli. Smáviðgerðir, skemmdir má laga með akrýlspartli, láttu þorna, slípaðu svo með sandpappír.
Málaðu flötinn tvisvar með Interiør eða Exolit V 40
Staðsetning og opnunartímar
Hversu mikla málningu þarftu að nota?