Lúturinn er borinn á í samfelldu og jöfnu lagi langsum eftir gólffjölunum og forðast að pollar myndist. Lúturinn er svo látinn þorna í um það bil 8 klukkustundir uns hann er allur jafnhvítur.
Slípaðu niður ójöfnur og trefjar með slípiklút, sandpappír nr 100 eða slípivél með slípineti nr 100. Mundu eftir að setja græna skífu á milli bakskífu og nets. Ryksugaðu gólfið svo vel.
Ryksugaðu gólfið svo vel.
Hrærðu vel í olíunni fyrir og eftir notkun! Olíunni er dreift á og hún borin á þannig að hún gangi niður í viðinn með pensli, rúllu eða gúmmísköfu á hæfilegt svæði, c.a. 5-10 fermetra í einu.
Staðsetning og opnunartímar
Hversu mikla málningu þarftu að nota?