Ef veggurinn er mjög sprunginn er mjög góð lausn að setja upp glervef, flóka eða Flügger Struktur. Þessi efni styrkja vegginn að mun, vinna gegn frekari sprungumyndun og tryggja fallegan og sterkan flöt. En svo má líka velja
glervef og Flügger Struktur eingöngu vegna útlitsins. Allt að einu fær veggurinn fallega áferð sem svo er hægt að mála yfir í hvaða lit sem er.
Hvernig á að setja upp Glervef
Áður en þú setur upp glervef, flóka eða Flügger Struktur
Glervefur er fáanlegur í þremur gerðum, fínn, milligrófur og grófur. Sé fínn eða milligrófur glervefur valinn þarf veggurinn að vera vel sléttur þar sem allar
ójöfnur sjást í gegnum vefinn. Grófa gerðin og Struktur felur ójöfnurnar betur.
Glervefur fæst ekki í mörgum mynsturgerðum en sé Struktur valið er um fjölmörg mynstur að velja. Einnig má fá algjörlega áferðarlausa gerð af glervef sem kallast glerflóki. Flókinn er settur upp á sama hátt og glervefur, nema hvað skera þarf glerflókann saman. Leitaðu ráða hjá næstu Flügger-málningarverslun um hvernig farið er að. Í glervef eru fíngerðar glertrefjar sem óþægilegt getur reynst að vinna með. Ráð gegn því er að nota hanska. Því fylgja engin óþægindi að vinna með Flügger Struktur.